Fara í efni

Sveitarfélagið Skagafjörður kaupir eignir Flokku ehf.

05.01.2022
Sorpmóttökustöðin að Borgarteig 12.

Ó.K. Gámaþjónusta ehf. og Sveitarfélagið Skagafjörður hafa komist að samkomulagi um kaup sveitarfélagsins á öllu hlutafé í einkahlutafélaginu Flokku ehf. Með kaupunum eignast Sveitarfélagið Skagafjörður eignir Flokku ehf. en þar er m.a. um að ræða sorpmóttökustöð að Borgarteig 12 á Sauðárkróki og tilheyrandi vélar og tæki. Eru kaupin liður í undirbúningi sveitarfélagsins fyrir fyrirhugað útboð á sorphirðu en gert er ráð fyrir að sorphirða í Sveitarfélaginu Skagafirði og Akrahreppi verði boðin út á árinu 2022 og að sorpmóttökustöðin að Borgarteig 12 verði hluti þeirra innviða og aðstöðu sem útboðið tekur til.

Samhliða var gerður leigusamningur á milli aðilanna þar sem sveitarfélagið leigir Ó.K. Gámaþjónustu fasteignina og tæki þar til niðurstaða fyrirhugaðs útboðs á sorphirðu liggur fyrir.