Fara í efni

Sveitasælan verður á Sauðárkróki um helgina

15.08.2018

Sveitasæla 2018, landbúnaðarsýning og bændahátíð, verður haldin næstkomandi laugardag, 18.ágúst, í reiðhöllinni Svaðastaðir í Skagafirði frá kl. 10:00 – 17:00.

Dagskráin er hin glæsilegasta og allir ættu að finna eitthvað við hæfi. Húsdýragarður, sveitamarkaður – beint frá býli, Leikhópurinn Lotta, Gunni og Felix, Hvolpasveitin, heitjárningar, smalahundasýning, kálfasýning, hrútadómar/hrútaþukl, sem og véla og fyrirtækjasýning verða m.a. í boði. Þá verður veitingasala á vegum Kiwanisklúbbsins Freyju, en allur ágóði rennur til góðra málefna í heimabyggð.

Við hvetjum heimafólk og gesti til þess að fjölmenna á Sveitasælu en aðgangur er ókeypis!