Fara í efni

Tendrun ljósa á jólatré og viðburðir í jóladagatal Skagafjarðar

08.11.2013

Ljós tendruð á jólatré á KirkjutorgiLíkt og undanfarin ár gefur vinabær Skagafjarðar í Noregi, Kongsberg, íbúum Skagafjarðar jólatré sem verður staðsett á Kirkjutorginu á Sauðárkróki. Ljósin á trénu verða tendruð laugardaginn 30. nóvember nk. kl. 15:30 við hátíðlega athöfn.

Sveitarfélagið Skagafjörður mun jafnframt birta jóla- og áramótadagskrá í desember líkt og síðustu ár þar sem viðburðir á aðventu, jólum og um áramót verða kynntir.

Þeir sem hafa áhuga á að koma viðburðum á framfæri í jóladagskrána eða hafa áhuga á að standa fyrir einhverju skemmtilegu í tengslum við tendrun ljósa á jólatrénu eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Sigfús Inga Sigfússon með því að senda póst á sigfus@skagafjordur.is eða hringja í síma 455 6170, fyrir miðvikudaginn 13. nóvember nk.