Fara í efni

Þjónustustefna Skagafjarðar - Samráð við íbúa

27.11.2024

Með lögum nr. 96/2021 sem tóku gildi í júní 2021 samþykkti Alþingi nýtt ákvæði við sveitarstjórnarlög sem fjallar um þjónustustefnu í byggðum og byggðarlögum sveitarfélags. Samkvæmt 130. gr. a sveitarstjórnarlaga, skal sveitarstjórn móta stefnu fyrir komandi ár og næstu þrjú árin eftir það, um það þjónustustig sem sveitarfélagið hyggst halda uppi í byggðum og byggðarlögum fjarri stærstu byggðakjörnum viðkomandi sveitarfélags.

Skagafjörður leitar eftir ábendingum/athugasemdum við þjónustustefnu Skagafjarðar. Hægt er að skila inn ábendingum/athugasemdum til og með 8. desember nk.

Smelltu hér til að skoða þjónustustefnu Skagafjarðar 2025 - 2028

Hægt er að senda inn ábendingu/athugasemd með því að smella hér