Fara í efni

Þjónustustefna Skagafjarðar - samráð við íbúa

09.11.2023

Með lögum nr. 96/2021 sem tóku gildi í júní 2021 samþykkti Alþingi nýtt ákvæði við sveitarstjórnarlög sem fjallar um þjónustustefnu í byggðum og byggðarlögum sveitarfélags. Samkvæmt 130. gr. a sveitarstjórnarlaga, skal sveitarstjórn móta stefnu fyrir komandi ár og næstu þrjú árin eftir það, um það þjónustustig sem sveitarfélagið hyggst halda uppi í byggðum og byggðarlögum fjarri stærstu byggðakjörnum viðkomandi sveitarfélags. 

Smelltu hér til að skoða þjónustustefnu Skagafjarðar 2024 - 2027

Skagafjörður leitar eftir ábendingum/athugasemdum við þjónustustefnu Skagafjarðar. Hægt er að senda inn ábendingu/athugasemd með því að smella hér

Hægt er að skila inn ábendingum/athugasemdum til og með 22. nóvember nk.