Fara í efni

Til sölu veiðileyfi í Laxá í Laxárdal

08.07.2019
Laxá í Laxárdal. Mynd agn.is

Veiðileyfi í eigu sveitarfélagsins í Laxá í Laxárdal í fyrrum Skefilsstaðahreppi eru til sölu.  Um er að ræða dagana 24. júlí og 4. ágúst. Veiðisvæðin eru tvö, svæði 1 frá árósnum við Sævarland að Skíðastöðum og svæði 2 frá Skíðastöðum að Háafossi.

Leyfð er ein stöng á hvoru svæði í ánni og er daglegur veiðitími frá kl 7 - 13 og 16 - 22.

Einungis er leyfð fluguveiði á flugustöng og eru fimm laxar hámarksveiði. Halda má einum hæng undir 70 cm, annars skal sleppa öllum laxi aftur í ána og leyfa særðum fiskum að njóta vafans. Veiðimanni ber að hætta veiði í ánni þegar hámarksveiði laxa er náð. Leyfilegt er að halda öllum silungi. Nánari upplýsingar um veiðitilhögun má finna á heimasíðunni laxaskef.is

Verðið fyrir daginn er 30.000 kr og geta áhugasamir haft samband við skagafjordur@skagafjordur.is

Fyrstur kemur fyrstur fær!