Tilkynning frá Safnahúsi Skagfirðinga
06.11.2020
Að gefnu tilefni vill starfsfólk Safnahússins vekja athygli á því að Safnahúsið er opið, þrátt fyrir veiruna.
Bókasafnið er opið frá kl. 11-18 alla virka daga og skjalasafnið er opið frá kl. 9-12 og 13-16 alla virka daga.
Nú eru nýju bækurnar að koma í hús, ein af annarri. Við hvetjum fólk til að koma og ná sé í bók að lesa en gætum vel að sóttvörnum. Grímur – spritt – hanskar!
Starfsfólk Safnahúss