Fara í efni

Tilkynning um félagslega heimaþjónustu og heimsendan mat

17.03.2020

Athygli er vakin á því að eldra fólk og aðrir sem tilheyra viðkvæmum hópum sem hingað til hafa ekki fengið félagslega heimaþjónustu og/eða heimsendan mat geta haft samband við afgreiðslu Ráðhússins og óskað eftir símtali. Félagsráðgjafi mun hafa samband og aðstoða eftir þörfum meðan á samkomubanni vegna covid – 19 stendur.  Hringið í síma 455-6000.