Fara í efni

Tilkynning til íbúa út að austan, Hofsós og nærsveitir

07.11.2022

Vegna viðgerðar á stofnlögn þarf að loka fyrir heita vatnið frá Hrolleifsdal á morgun þriðjudag 8. nóvember.

Heitavatnslaust verður á öllu svæðinu frá Hrolleifsdal og inn í Viðvíkursveit.

Lokað verður fyrir vatnið um kl. tíu og mun viðgerðin standa fram eftir degi.

Athugið að skrúfað sé fyrir krana svo ekki komi til tjóns þegar vatni verður hleypt á aftur.

 

Skagafjarðarveitur biðjast velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að valda.