Tilkynning vegna VetrarTíms reikninga fótboltaiðkenda
22.04.2015
Það geta alltaf orðið mistök og þau leiðu mistök urðu við útgáfu VetrarTím reikninga fyrir fótboltaiðkun að það gleymdist að uppfæra textann. Á reikningunum stendur: fótbolti, sept-des 2014 en á að vera fyrir tímabilið jan-maí 2015.
Innheimta sveitarfélagsins biðst velvirðingar á þessum mistökum.
Hægt er að skoða reikningana í íbúagáttinni en hana er hægt að opna með rafrænum skilríkjum, bæði síma og korti.