Tún til leigu á Nöfunum
10.11.2015
Sveitarfélagið auglýsir til leigu fjögur tún á Nöfunum á Sauðárkróki ásamt aðstöðuhúsum, eftir því sem við á.
Um er að ræða eftirtaldar lóðir:
- Lóð 24 á Nöfum, fastanúmer 213-2609, landnúmer 143965 – stærð 5.875 m2 – á lóðinni skepnuhús byggt 1950.
- Lóð 25 á Nöfum, fastanúmer 233-7255, landnúmer 143959 - stærð 12.483 m2
- Lóð 27 á Nöfum, fastanúmer 233-7256, landnúmer 143964 – stærð 21.787 m2 – Skepnuhús á lóðinni.
- Lóð 32 á Nöfum, fastanúmer 233-7260, landnúmer 143972 – stærð 7.535 m2 – á lóðinni standa óskráð skepnuhús.
Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir um að sækja um skriflega og upplýsa í umsókn hvaða búskap ætlunin er að stunda á viðkomandi lóð. Umsóknarfrestur er til og með 18. nóvember n.k. Umsóknum má skila í afgreiðslu Ráðhússins eða senda í tölvupósti á netfangið skagafjordur@skagafjordur.is
Sveitarfélagið áskilur sér rétt til að taka hvaða umsókn sem er eða hafna öllum.
Frekari upplýsingar veitir Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs.
Sveitarstjóri.