Sveitarfélagið Skagafjörður og unglingamótsnefnd UMFÍ undirrituðu í gær í Húsi frítímans samning um framkvæmd unglingalandsmóts UMFÍ sem haldið verður á Sauðárkróki dagana 1. - 3. ágúst 2014. Mótið er nú haldið í sautjánda sinn en þetta er í þriðja sinn sem það er haldið á Sauðárkróki.