Útboð - Akstursþjónusta í Skagafirði
18.02.2025
Consensa fyrir höng Skagafjarðar óskar eftir tilboðum í akstursþjónustu fyrir aldraða í Skagafirði samkvæmt skilmálum útboðsins. Útboðinu er skipt í tvo samningshluta og heimilt er að leggja fram tilboð í annan samningshluta útboðsins eða báða samningshluta þess.
Hægt er að sækja öll útboðsgögn án greiðslu á útboðsvefnum www.tendsign.is.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á útboðsvef eigi síðar en kl. 12:00 þann 20. mars 2025.
Nánari upplýsingar má finna á www.consensa.us/utbod/auglyst-utbod