Útboð - Gatnagerð við Laugaveg í Varmahlíð
31.03.2023
Skagafjörður óskar eftir tilboðum í verkið Laugavegur Varmahlíð – Gatnagerð 2023.
Verkið felst m.a. í endurgerð fráveitulagna, fjarskiptalagna, vatnsveitu og hitaveitu í götunni, auk jarðvegsskipta í hluta götunnar, með malbikun akbrautar og gangstétta og gerð kantsteina.
Opnunardagur tilboða er 21. apríl 2023. Verkinu í heild skal lokið 15. október 2023.
Sjá auglýsingu hér að neðan: