Fara í efni

Varmahlíðarskóli áfram í Skólahreysti

13.03.2014
Mynd skólahreysti.is

Það var líf og fjör og um 2000 manns sem voru mætt í íþróttahöllina á Akureyri í gær á undankeppni Skólahreysti 2014 segir á vef Skólahreystis Allir grunnskólarnir í Skagfirði voru með lið eins og undanfarin ár og Varmahlíðarskóli endaði í fyrsta sæti í sínum riðli með 54 stig. Ekki gekk eins vel hjá liði Grunnskólans  austan Vatna og Árskóla en Grunnskóli Dalvíkur var í öðru sæti með 48 stig og Grunnskóli Hólmavíkur í því þriðja með 41 stig.

Allir þættir frá Skólahreysti verða teknir upp og sýndir á föstudagskvöldum á Rúv.