Fara í efni

Varmahlíðarskóli óskar eftir grunnskólakennurum

16.05.2018

Varmahliðarskóli óskar eftir grunnskólakennurum 

 

Um 3 störf er að ræða:

 

Menntunarkröfur: Grunnskólakennari með leyfisbréf til kennslu í grunnskóla.

Hæfniskröfur: Faglegur metnaður og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi. Hæfni í mannlegum samskiptum. Reynsla og áhugi á að starfa með börnum.

Vinnutími: Dagvinna.

Launakjör: Laun og önnur starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ vegna FG.

Umsóknarfrestur er til og með 30. maí 2018

Nánari upplýsingar: Hanna Dóra Björnsdóttir, skólastjóri Varmahlíðarskóla, í síma 898-6698 eða með því að senda fyrirspurn á hannadora@varmahlidarskoli.is.

Umsóknir: Umsókn ásamt ferilskrá, prófskírteini og leyfisbréfi skal skilað í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagafjordur.is (laus störf). Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Karlar, sem og konur, eru hvattir til að sækja um.

 

Í Varmahlíðarskóla eru um 110 nemendur í 1.-10. bekk. Flestir nemendur skólans koma úr Varmahlíð og drefibýli í framanverðum Skagafirði. Varmahlíðarskóli leggur áherslu á faglegt, fjölbreytt og sveigjanlegt starf með nemendum, foreldrum, starfsmönnum og grenndarsamfélaginu. Nám er kjarni skólastarfsins og efling náms er meginviðfangsefni starfsmanna skólans. Varmahlíðarskóli starfar sem heilsueflandi grunnskóli og leggur áherslu á hreyfingu og heilbrigða lífshætti.