Fara í efni

Vetrarhátíð í Skagafirði framundan

16.02.2015
Vetrarhátíð í Skagafirði 2015

Framundan er stórglæsileg vetrarhátíð í Skagafirði með fjölbreyttri og fjölskylduvænni dagskrá á bæði skíðasvæðinu í Tindastóli og víðar um Skagafjörðinn.

Dagskráin er formlega sett fimmtudagskvöldið 19. febrúar og svo rekur hver viðburðurinn annan.

Skíðasvæðið í Tindastóli er afar fjölskylduvænt skíðasvæði í fjallaparadísinni Tindastóli í Skagafirði. Fjallið býður upp á mikla möguleika, bæði fyrir byrjendur og þá sem eru lengra komnir. Allir geta því fundið eitthvað við sitt hæfi, hvort sem um er að ræða svigskíði, snjóbretti eða gönguskíði. Hægt er að leigja allan skíða- og brettabúnað í fjallinu.