Viðgerðir á gervigrasvellinum á Sauðárkróki hefjast á morgun
Viðgerðir á gervigrasvellinum á Sauðárkróki hefjast á morgun. Í kjölfar leysinga þann 20. apríl sl. urðu skemmdir á um 1.500 fermetra svæði á vellinum, en völlurinn sjálfur er rúmlega 8.000 fermetrar. Byggðaráð Skagafjarðar samþykkti á fundi sínum á miðvikudaginn að fara í viðgerðir á vellinum að fjárhæð 11 milljónir króna og í kjölfarið fer fram endurnýjun á 550 fermetrum af gervigrasi á vellinum í samræmi við fjárhagsáætlun 2024 .
Á meðan viðgerðum stendur verður hluta vallarins lokað en hægt verður að æfa á þeim hluta sem ekki varð fyrir skemmdum. Mikilvægt er að foreldar og forráðamenn brýni fyrir börnum sínum að fara varlega í kringum framkvæmdirnar.
Framkvæmdin á vellinum eru á höndum Metatron og er áætlað að viðgerðum ljúki um næstu mánaðarmót.