Hafnarstjórn
Hafnarstjórn Skagafjarðar
Fundur 12 – 21.10.1999
Ár 1999, fimmtudaginn 21. október kom hafnarstjórn saman til fundar á Skrifstofu Skagafjarðar kl. 815.
Mættir voru: Brynjar Pálsson, Björn Björnsson, Guðni Kristjánsson, Gunnar Valgarðsson og Eiríkur Jónsson. Auk þeirra Hallgrímur Ingólfsson bæjartæknifræðingur og Snorri Björn Sigurðsson sveitarstjóri.
DAGSKRÁ:
- Verksamningur.
- Aðstæður við bryggju í Haganesvík.
- Rafmagnstengikassi við smábátahöfn.
AFGREIÐSLUR:
1. Lagður fram verksamningur milli Hafnarsjóðs og Björgunar ehf. um dýpkun í Sauðárkrókshöfn. Er samningsupphæð kr. 14.735.000.- Verklok eru áætluð 12. desember. Hafnarstjórn samþykkir framlagðan verksamning.
2. Lagt fram minnisblað frá Hallgrími Ingólfssyni og Baldri Bjartmarssyni á Siglingastofnun varðandi aðstæður við bryggjuna í Haganesvík. Er minnisblaðið dags. 1. okt. sl. Fram kom að gerðar hafa verið nauðsynlegar lagfæringar.
3. Hafnarstjórn samþykkir að komið verði upp rafmagnstengikassa við smábátahöfnina. Kostnaður er áætlaður kr. 140.000.-
Fleira ekki gert. Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið.
Brynjar Pálsson Snorri Björn Sigurðsson
Björn Björnsson Hallgrímur Ingólfsson
Gunnar Valgarðsson
Eiríkur Jónsson
Guðni Kristjánsson