Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa Svf Skagafjarðar
Dagskrá
1.Laugarhvammur lóð 2 177137 - Umsókn um byggingarleyfi, smáhýsi á lóð
Málsnúmer 1702123Vakta málsnúmer
Undirritaður Hinrik Jóhannesson kt. 151252-4869 fh. Svövu Svavarsdóttur eiganda, óskar heimildar til að byggja smáhýsi á lóðinni Laugarhvammur lóð 2, landnr. 177137. Meðfylgjandi gögn gera grein fyrir fyrirhugaðri framkvæmd. Erindið samþykkt.
2.Sæmundargata 13 - Umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 1702219Vakta málsnúmer
Guðjón S. Magnússon kt. 250572-4929 fyrir hönd eigenda Sæmundargötu 13 á Sauðárkróki sækir um leyfi til breytinga á húsnæðinu. Fyrirhugað er að breyta hluta viðbyggingar sem teiknuð var við húsið árið 1962 í bílgeymslu, í dag skráð íbúðarrými. Innkeyrsluhurð kemur í stað glugga á vesturhlið. Meðfylgjandi uppdrættir gerðir af Guðmundi Þór Guðmundssyni kt. 200857-5269, dagsettir í október 1996, breytt í febrúar 2017.Erindið samþykkt. Byggingarleyfi veitt.
3.Bræðraá 146512 - Umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 1611128Vakta málsnúmer
Sigríður J. Pétursdóttir kt. 080849-3119 Raftahlíð 9 Sauðárkróki sækir fyrir hönd eigenda jarðarinnar Bræðraá, landnúmer 146512, um leyfi til að byggja aðstöðuhús á jörðinni. Meðfylgjandi umsókn eru aðaluppdrættirnir dagsettir 13.11.2016, gerðir af Þóri Guðmundssyni byggingarfræðingi, kt. 040381-5389, ásamt séruppdráttum sem gerðir eru af Trausta Val Traustasyni 160783-5249, byggingartæknifræðingi. Uppdrættir dagsettir 13.11.2016. Byggingarleyfi veitt.
4.Bær listaskáli(146513) - Umsagnarbeiðni vegna rekstrarleyfis
Málsnúmer 1702206Vakta málsnúmer
Með tölvubréfi dags. 17.02.2017 óskar Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra eftir umsögn um umsókn Steinunnar Jónsdóttur kt. 270568-3439, f.h. Höfðastrandar ehf. kt.430505-0840, um leyfi til að reka gististað í flokki II, Listaskála að Bæ á Höfðaströnd. Umsókn Steinunnar dagsett 15.02.2017.Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við veitingu rekstrarleyfis.
5.Brúnastaðir sumarhús - Umsagnarbeiðni vegna rekstrarleyfis
Málsnúmer 1701097Vakta málsnúmer
Með tölvubréfi dags. 09.01.2017 óskar Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra eftir umsögn um umsókn Stefaníu Leifsdóttur kt. 210665-3909, f.h. Ferðaþjónustunnar Brúnastöðum kt.680911-0530, um endurnýjun á leyfi til að reka gististað í flokki I að Brúnastöðum, sumarhús. Umsókn Stefaníu dagsett 09.01.2017. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við veitingu rekstrarleyfis.
6.Fjall - Umsagnarbeiðni vegna gistileyfis
Málsnúmer 1702159Vakta málsnúmer
Með tölvubréfi dags. 10.02.2017 óskar Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra eftir umsögn um umsókn Birgis Haukssonar kt. 240164-3969, Valagerði, um leyfi til að reka gististað í flokki II að Fjalli í Sæmundarhlíð. Landnúmer 146025. Umsókn Birgis er dagsett 10.02.2017. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við veitingu rekstrarleyfis.
7.Glæsibær 145975 - Umsagnarbeiðni vegna rekstrarleyfis
Málsnúmer 1702201Vakta málsnúmer
Með tölvubréfi dags. 16.02.2017 óskar Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra eftir umsögn um umsókn Friðriks Stefánsson kt. 200140-7619, Glæsibæ um leyfi til að reka gististað í flokki II að Glæsibæ. Umsókn Friðriks er dagsett 14.02.2017. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við veitingu rekstrarleyfis.
Fundi slitið - kl. 14:15.