Atvinnu- og ferðamálanefnd
Atvinnu- og ferðamálanefnd
Sameinaðs sveitarfélags í Skagafirði
Fundur 4 – 17.08.98
Ár 1998, mánudaginn 17. ágúst, kom Atvinnu- og ferðamálanefnd saman til fundar á skrifstofu Skagafjarðar kl. 900. Mættir voru; Stefán Guðmundsson, Brynjar Pálsson, Einar Gíslason og Ásdís Guðmundsdóttir.
Dagskrá:
1. Ferðamál.
2. Viðræður við Björn Björnsson og Hilmar Sverrisson.
Afgreiðslur:
1. Á fundinn kom Jón Ormar Ormsson. Skýrði hann nánar fyrir nefndarmönnum ýmis þau atriði sem fram komu í bréfi hans til nefndarinnar sem lagt var fram á síðasta fundi, svo og ýmsar hugmyndir varðandi ferðamál í Skagafirði.
2. Á fundinn komu Björn Björnsson og Hilmar Sverrisson. Kynntu þeir fyrir nefndarmönnum hugmyndir sínar varðandi útgáfu á kynningarefni um Skagafjörð. Formanni falið að vinna að málinu.
Fleira ekki gert. Fundargerð upplesin og samþykkt. Fundi slitið.
Elsa Jónsdóttir, ritari.
Stefán Guðmundsson
Einar Gíslason
Brynjar Pálsson
Ásdís Guðmundsdóttir