Byggðarráð Skagafjarðar
Dagskrá
1.Rekstrarsamningur við skíðadeild 2024
Málsnúmer 2406128Vakta málsnúmer
2.Frístundaakstur
Málsnúmer 2412001Vakta málsnúmer
Lagður fram tölvupóstur dagsettur 1. desember 2024 þar sem annars vegar er verið að þakka fyrir fyrirkomulag frístundaferða þar sem ekið er með börn frá Hofsósi og Varmahlíð á Sauðárkrók. Aksturinn er tilraunaverkefni til áramóta og hefur verið mikið nýttur af börnum til íþróttaiðkunar. Þess er einnig farið á leit við sveitarfélagið að fyrirkomulaginu verði haldið áfram eftir áramót og jafnvel skoðað að aka bæði frá Hofsósi og Varmahlíð á Sauðárkrók og aftur til baka frá Sauðárkróki í Varmahlíð og á Hofsós. Undir erindið rita U.Í. Smári, Neisti, Knattspyrnudeild Tindastóls og Körfuknattleiksdeild Tindastóls.
Byggðarráð tekur jákvætt í erindið og samþykkir samhljóða að vísa málinu til félagsmála- og tómstundanefndar. Byggðarráð óskar jafnframt eftir upplýsingum um afstöðu nefndarinnar.
Byggðarráð tekur jákvætt í erindið og samþykkir samhljóða að vísa málinu til félagsmála- og tómstundanefndar. Byggðarráð óskar jafnframt eftir upplýsingum um afstöðu nefndarinnar.
3.Enni L146518 - Fyrirspurn vegna landskipta
Málsnúmer 2402150Vakta málsnúmer
Lögð fram merkjalýsing fyrir jörðina Enni L146518 í Skagafirði en með henni eru einnig ytri merki jarðarinnar hnitsett og skipt út hluta jarðarinnar sem fær heitið Enni II. Upprunajörðin mun heita Enni I og halda landnúmerinu L146518.
Mælingar fóru fram á vettvangi 13. júní 2024. Mælingar annaðist Ásta Birna Jónsdóttir hjá verkfræðistofunni Stoð ehf. Starfsmenn skipulagsfulltrúa Skagafjarðar hafa yfirfarið merkjalínur og gera ekki athugasemdir við að skrifað sé undir merkjalýsinguna fyrir hönd sveitarfélagsins.
Byggðarráð Skagafjarðar samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að skrifa undir merkjalýsinguna fyrir hönd sveitarfélagsins Skagafjarðar.

4.Trúnaðarbók byggðarráðs
Málsnúmer 2412006Vakta málsnúmer
2 mál færð í trúnaðarbók byggðarráðs
5.Skagafjörður, fjárhags- og rekstrarupplýsingar 2024
Málsnúmer 2404252Vakta málsnúmer
Lagðar fram til kynningar fjárhagsupplýsingar vegna reksturs sveitarfélagsins tímabilið janúar-október 2024.
Fundi slitið - kl. 15:17.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.