Fara í efni

Byggðarráð Skagafjarðar

132. fundur 06. febrúar 2025 kl. 15:00 - 15:58 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Gísli Sigurðsson formaður
  • Einar Eðvald Einarsson varaform.
  • Jóhanna Ey Harðardóttir aðalm.
  • Álfhildur Leifsdóttir áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
  • Baldur Hrafn Björnsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Baldur Hrafn Björnsson Sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá

1.Fjölgun stöðugilda í rannsóknadeild LNV

Málsnúmer 2502042Vakta málsnúmer

Byggðarráð Skagafjarðar samþykkir samhljóða að skora á dómsmálaráðherra að beita sér fyrir auknum fjárheimildum til lögreglunnar á Norðurlandi vestra, til að embættinu sé fært að ráða í 2 stöðugildi rannsóknarlögreglumanna. Með þeim hætti er tryggt að embættinu er unnt að sinna þeim málaflokkum sem því er falið með lögum, m.a. í kjölfar gildistöku reglugerðar nr. 851/2024 þar sem rannsóknarforræði kynferðisbrota- og manndrápsmála í umdæmi lögreglunnar á Norðurlandi vestra, var fært heim í hérað. Einsýnt er að gæta þarf jafnræðis á milli lögreglustjóraembætta og tryggt að þeim sé fært að standa undir lögbundnum skyldum sínum. Um afar mikilvæga málaflokka er að ræða og sýnir reynslan að nauðsynlegt er að tryggja að rannsóknum svo alvarlegra brota sé sinnt með vönduðum og faglegum hætti.

2.Háholt

Málsnúmer 2502052Vakta málsnúmer

Byggðarráð Skagafjarðar samþykkir samhljóða að auglýsa Háholt, fasteignanúmer F2241037, til sölu. Um er að ræða steypta fasteign sem er 385,7 fm að stærð, byggð árið 1998, ásamt 3 ha eignarlóð. Í fasteigninni eru níu herbergi, þrjú baðherbergi, geymslur, skrifstofur, setustofur, tvö þvottahús, iðnaðareldhús og fleiri rými.
Góð lofthæð er í fasteigninni og loftræstikerfi. Eignin er vel staðsett og í góðu ástandi.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að auglýsa fasteignina til sölu.

3.Álag á gjald skólabílstjóra á vistvænum bifreiðum

Málsnúmer 2501192Vakta málsnúmer

Mál áður á dagskrá 131. byggðarráðsfundar þann 29. janúar sl.

Álfhildur Leifsdóttir vék af fundi byggðarráðs undir afgreiðslu málsins.

Umræður teknar um hvernig er rétt að standa að útfærslu endurskoðunarákvæðis í samningum við skólabílstjóra vegna bifreiða sem endurnýjaðar eru með bifreiðum sem ganga að öllu leiti fyrir vistvænum orkugjafa.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að veita sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs heimild til að greiða 2,5% álag á kílómetragjald fyrir þær leiðir sem eknar eru á bifreiðum sem ganga að öllu leiti fyrir vistvænum orkugjafa, óski samningsaðili eftir að nýta endurskoðunarákvæði samningsins.

4.Skólahúsnæðið að Sólgörðum í Fljótum

Málsnúmer 2410310Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf, dagsett 23. október 2024, frá Ólöfu Ýrr Atladóttur eiganda og framkvæmdastjóra Sótahnjúks ehf., þar sem óskað er eftir upplýsingum um fyrirhugaða breytingu húsnæðis fyrrverandi skólahúsnæðis að Sólgörðum í Fljótum. Jafnframt er áréttaður áhugi bréfritara á að nýta húsnæðið fyrir rekstur Sótahnjúks, hafi áætlanir sveitarfélagsins breyst.

Byggðarráð upplýsir fyrirspyrjanda um að ekki liggur enn fyrir endanleg niðurstaða varðandi fyrirhugaðar breytingar á umræddu húsnæði að Sólgörðum í Fljótum en unnið er að útfærslum á uppbyggingu hagkvæms leiguhúsnæðis í Fljótum.

Í ljósi fyrirspurnarinnar og áhuga frá öðrum aðilum einnig á nýtingu fasteignarinnar, samþykkir byggðarráð samhljóða að auglýsa fasteignina til leigu til 31.12.2025, á meðan unnið er í málum varðandi uppbyggingu leiguíbúða í Fljótum.

5.Miðstöð slysavarna barna styrkbeiðni

Málsnúmer 2501327Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi, dags. 27. janúar 2025, frá Herdísi L. Storgaard stofnanda góðgerðarfélagsins Miðstöðvar slysavarna barna, þar sem óskað er eftir styrk að upphæð kr. 50.000 til fjármögnunar fræðslumyndbands fyrir foreldra um slysavarnir ungra barna á heimilum og öryggi þeirra í bílum. Er myndbandinu ætlað að ná m.a. til foreldra á landsbyggðinni og foreldra sem hafa ekki íslensku að tungumáli.

Byggðarráð telur sér ekki fært að verða við styrkbeiðninni.

6.Staða fatlaðra barna í fyrirhuguðu verkfalli Kennarasambands Íslands

Málsnúmer 2501332Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Umhyggju, félagi langveikra barna, Landssamtökunum Þroskahjálp, Einhverfusamtökunum, Sjónarhóli ráðgjafamiðstöð og ÖBÍ réttindasamtökum, dagsett 28. janúar 2025, sem sent var til Sambands íslenskra sveitarfélaga, Kennarasambands Íslands, mennta- og barnamálaráðuneytis og Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu. Í bréfinu er komið á framfæri áhyggjum framangreindra samtaka af skerðingu á þjónustu við fötluð börn og fjölskyldur þeirra á meðan á verkföllum Kennarasambands Íslands stendur en að mati samtakanna breytast skyldur sveitarfélaga gagnvart fötluðum börnum ekki þrátt fyrir að verkfall hefjist og skólastarfsemi falli niður. Biðla þau til undanþágunefndar Kennarasambands Íslands og sveitarfélaganna að taka til greina þær undanþágubeiðnir sem berast til nefndarinnar frá foreldrum fatlaðra barna og skólastjórum skóla þeirra, en sé talið að beiðnirnar uppfylli ekki skilyrði lagaákvæða um undanþágu telja samtökin að sveitarfélögunum beri að tryggja að ekki verði þjónusturof við fötluð börn innan þeirra.

Byggðarráð Skagafjarðar tekur undir áhyggjur samtakanna.

7.Samráð; Frumvarp til laga um breytingar á jarðalögum nr. 81 2004 (forkaupsréttur sameigenda o.fl.)

Málsnúmer 2502040Vakta málsnúmer

Matvælaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 12/2025, "Frumvarp til laga um breytingar á jarðalögum, nr. 81/2004 (forkaupsréttur sameigenda o.fl.)". Umsagnarfrestur er til og með 13.02.2025.

8.Kvörtun vegna stjórnsýslu Skagafjarðar

Málsnúmer 2412019Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf frá innviðaráðuneytinu, dags. 29. janúar 2025, þar sem fjallað er um skoðun ráðuneytisins á kæru Álfhildar Leifsdóttur, sveitarstjórnarfulltrúa í sveitarstjórn Skagafjarðar og áheyrnarfulltrúi í byggðarráði, þar sem farið var fram á að að ráðuneytið skæri úr um hæfi sveitarstjórnarfulltrúans við afgreiðslu fyrirspurnar hennar á fundi byggðarráðs Skagafjarðar 30. október 2024. Ráðuneytið vísaði þeirri kæru frá með bréfi dags. 29. nóvember 2024, þar sem málið væri ekki tækt til úrskurðar á grundvelli 111. gr. sveitarstjórnarlaga að mati ráðuneytisins. Í því bréfi kom þó fram að ráðuneytið myndi leggja mat á hvort að efni kærunnar gæfi ráðuneytinu tilefni til að fjalla formlega um stjórnsýslu sveitarfélagsins á grundvelli 112. gr. sveitarstjórnarlaga.
Í bréfinu er málið reifað ítarlega en niðurstaða innviðaráðuneytisins er sú að það telji ekki ástæðu til að fjalla formlega um þá ákvörðun byggðarráðs að sveitarstjórnarfulltrúanum bæri að víkja sæti við meðferð málsins á fundi byggðaráðs þann 30. október sl., enda hafi sú framkvæmd verið í samræmi við fyrirmæli 7. mgr. 20. gr. sveitarstjórnarlaga. Með vísan til framangreinds telur ráðuneytið því ekki tilefni til að taka stjórnsýslu sveitarfélagsins Skagafjarðar til formlegrar umfjöllunar á grundvelli 112. gr. sveitarstjórnarlaga. Telst málinu því lokið af hálfu ráðuneytisins.

Fundi slitið - kl. 15:58.