Byggðarráð Svf. Skagafjarðar
Dagskrá
Fundinn sátu einnig fulltrúar Akrahrepps, Þorkell Gíslason og Þorleifur Hólmsteinsson og stjórnarmenn Náttúrustofu Norðurlands vestra, Sigríður Magnúsdóttir og Sigurlaug Konráðsdóttir.
1.Náttúrustofa Norðurlands vestra - rekstrarsamningur
Málsnúmer 1301243Vakta málsnúmer
Byggðarráð, ásamt fulltrúum Akrahrepps, samþykkir að starfsemi Náttúrustofu Norðurlands vestra verði endurskipulögð með það að markmiði að efla hana og fá fleiri sveitarfélög á starfsvæði stofnunarinnar að rekstrinum. Byggðarráð felur stjórn Náttúrustofu Norðurlands vestra að hefja vinnu við endurskipulagninguna sem fyrst.
Fundi slitið - kl. 10:58.