Byggðarráð Svf. Skagafjarðar
1.Fundargerð samráðsnefndar Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Akrahrepps
Málsnúmer 1107026Vakta málsnúmer
Fundargerð 9. fundar Samstarfsnefndar með Akrahreppi lögð fram til afgreiðslu á 559. fundi byggðarráðs eins og einstök erindi bera með sér.
1.1 Viðhald á skólastjórabústað í Varmahlíð
Afgreiðsla 9. fundar samstarfsnefndar með Akrahreppi staðfest á 559. fundi byggðarráðs með þremur atkvæðum. |
1.2 Breytingar á skólahúsnæði Varmahlíðarskóla
Afgreiðsla 9. fundar samstarfsnefndar með Akrahreppi staðfest á 559. fundi byggðarráðs með þremur atkvæðum.
1.3 Ráðningarsamningur við skólastjóra
Afgreiðsla 9. fundar samstarfsnefndar með Akrahreppi staðfest á 559. fundi byggðarráðs með þremur atkvæðum.
1.4 Leiguhúsnæði fyrir skólastjóra
Afgreiðsla 9. fundar samstarfsnefndar með Akrahreppi staðfest á 559. fundi byggðarráðs með þremur atkvæðum.
2.Umsókn um leyfi til viðbyggingar
Málsnúmer 1106114Vakta málsnúmer
Í upphafi fundar hittu fundarmenn forsvarsmenn Björgunarsveitarinnar Grettis á Hofsósi og Brunavarna Skagafjarðar vegna umsóknar björgunarsveitarmanna um viðbyggingu við hús björgunarsveitar Grettis á Hofsósi og Brunavarna Skagafjarðar. Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við fyrirhugaða viðbyggingu sem greidd er af Björgunarsveitinni Gretti, en eigendur hússins eru sammála um að áður en viðbygging hefst verði búið að ganga frá eignaskiptasamningi um húsið á milli aðila.
3.Ártorg 4 - Umsókn um rekstrarleyfi
Málsnúmer 1107027Vakta málsnúmer
Lagt fram bréf frá Sýslumanninum á Sauðárkróki þar sem óskað er umsagnar vegna umsóknar fyrir Ábæ N1 þjónustustöð á Sauðárkróki um endurnýjun á rekstrarleyfi. Veitingaverslun Flokkur I.
Byggðarráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina.
4.Umsókn um leyfi til að halda rallýkeppni
Málsnúmer 1107005Vakta málsnúmer
Lagt fram erindi frá Bílaklúbbi Skagafjarðar, þar sem sótt er um leyfi til að halda rallýkeppni, laugardaginn 23. júlí 2011. Eknar verða sérleiðirnar Ásgarður - Bakki, Mælifellsdalur og Nafir. Byggðarráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti svo fremi að öll önnur tilskilin leyfi fáist frá hlutaðeigandi aðilum og öllum reglum verði framfylgt. | |||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
5.Styrkir til samstarfs í rafrænni stjórnsýslu
Málsnúmer 1107039Vakta málsnúmer
Lögð fram kynning frá Rannís á möguleika á að sækja um styrki til rannsókna og þróunar á rafrænni stjórnsýslu. ( Citizen-Centric eGovernment Servics 2011) Byggðaráð samþykkir að vísa málinu til atvinnu-og ferðmálanefndar til frekari umfjöllunar.
6.Kynning á þjónustu
Málsnúmer 1107002Vakta málsnúmer
Lagt fram til kynningar bréf frá Centra Fyrirtækjaráðgjöf þar sem boðið er upp á fjármálaþjónustu fyrir sveitarfélög.
7.Þátttaka ungmenna á Umhverfisþingi
Málsnúmer 1107023Vakta málsnúmer
Lagt fram til kynningar bréf frá Umhverfisráðuneyti vegna VII. Umhverfisþings sem haldið verður á Hótel Selfossi 14.október 2011.
Fundi slitið - kl. 11:30.
Að því loknu var Félagsheimilið Höfðaborg skoðað m.t.t. endurbóta, einnig svæðið umhverfis áhaldahús sveitarfélagsins og vigtarskúrs, ljóst er að nauðsynlegra úrbóta er þörf.