Félagsmálanefnd
Árið 2000 mánudaginn 3 janúar kom félagsmálanefnd saman til fundar í Stjórnsýsluhúsinu á Sauðárkróki kl. 1100.
Mættir: Elinborg Hilmarsdóttir, Sólveig Jónasdóttir, Trausti Kristjánsson, Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir og Ásdís Guðmundsdóttir.
Auk þeirra Guðbjörg Ingimundardóttir.
DAGSKRÁ:
- Umræða um fjárhagsáætlun fyrir árið 2000.
- Önnur mál.
AFGREIÐSLA:
Umræða um fjárhagsáætlun
- Nefndin leggur til að upphæð til Stígamóta verði áætluð 100.000.-kr. og upphæð til kvennaathvarfs 100.000.- kr. Lögð er áhersla á forvarnir og fræðslu sem þessi samtök veita og nýtist öllum.
- Félagsmálanefnd gerir fyrirspurn við lykla 227 og 228 dagvist Lýtingsstaða og Hofsós.
- Umræða um heimaþjónustu, nefndin leggur áherslu á aðhald í rekstri heimaþjónustu.
- Félagsmálanefnd fer fram á að leitað verði leiða til að draga úr aksturskostnaði í Félagsþjónustu Skagafjarðar.
- Fjárhagsáætlun afgreidd með fyrirvara vegna þess að ekki liggur fyrir nefndinni fjárhagsáætlun húsnæðisnefndar og vegna fyrirspurnar í lið b.
Fleira ekki gert. Fundi slitið.
Elinborg Hilmarsdóttir
Guðbjörg Ingimundardóttir
Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir
Trausti Kristjánsson
Ásdís Guðmundsdóttir
Sólveig Jónasdóttir