Félagsmálanefnd
Árið 2001, þriðjudaginn 6. mars kom félagsmálanefnd saman til fundar á skrifstofu Skagafjarðar kl. 13,15.
Mætt voru: Elinborg Hilmarsdóttir, Ingibjörg Hafstað, Ásdís Guðmundsdóttir, Sólveig Jónasdóttir og Trausti Kristjánsson. Auk þeirra Árdís Antonsdóttir og Gunnar M. Sandholt starfsmenn nefndarinnar.
Dagskrá:
- Húsnæðismál.
- Trúnaðarmál.
- Endurskoðun reglna um niðurgreiðslu á daggæslu í heimahúsum.
- Gjaldskrá vegna heimaþjónustu - tillaga.
- Félagsstarf aldraðra.
- Rekstrarstaða.
- Önnur mál
Afgreiðslur:
1. Húsnæðismál - engin.
2. Trúnaðarmál – sjá trúnaðarbók.
3. Endurskoðun reglna um niðurgreiðslu á daggæslu í heimahúsum. Afgreiðslu frestað til næsta fundar.
4. Gjaldskrá vegna heimaþjónustu. Lögð fram tillaga frá félagsmálastjóra varðandi mat á niðurfellingu/lækkun greiðslna samkvæmt gjaldskrá fyrir heimaþjónustu í Skagafirði:
“Félagsmálaráð telur rétt að telja ekki sérstaka uppbót lífeyristrygginga vegna læknis- og lyfjakostnaðar eða bensínstyrk almannatrygginga til tekna, enda liggur fyrir mat Tryggingastofnunar ríkisins á sérstökum útgjöldum bótaþegans þegar heimild er veitt til greiðslu þessara bóta. Sama gildir um uppbót vegna sérstaks umönnunarkostnaðar og skal hann þá metinn á grundvelli 3. gr. gjaldskrárinnar og matið lagt fyrir félagsmálanefnd.” Tillagan samhljóða samþykkt á fundinum.
5. Félagsstarf aldraðra. Lagt fram bréf dags. 18. 01. 2001, frá Félagi eldri borgara þar sem farið er fram á 350.000 kr. styrk til félagsstarfsins. Beiðninni synjað á grundvelli fjárhagsáætlunar og vísað til samnings dags. 2. okt. 2000.
Félagsmálastjóra falið að skrifa til hússtjórnar Ljósheima varðandi gjaldskrá.
6. Rekstrarstaða, lögð fram til kynningar.
7. Önnur mál
- Upplýsingar varðandi námskeiðið, “Félagsþjónusta á tímamótum” lagðar fram til kynningar.
- Lagt fram til kynningar, minnisblað dags. 06. 03. 2001 um ábyrgðarskiptingu verkefna og gjaldaliða milli félagsmálanefndar, skólanefndar og menningar-, íþrótta- og æskulýðsnefndar.
Næsti fundur nefndar verður þriðjudaginn 20. mars kl. 13.15.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 14.35
Árdís Antonsdóttir, ritari.
Ásdís Guðmundsdóttir
Elinborg Hilmarsdóttir
Trausti Kristjánsson
Sólveig Jónasdóttir
Ingibjörg Hafstað