Sundlaugin, Steinsstöðum.
Málsnúmer 0801068
Vakta málsnúmerByggðarráð Svf. Skagafjarðar - 430. fundur - 17.04.2008
Lagt fram erindi frá Ferðaþjónustunni Steinsstöðum ehf þar sem óskað er eftir að skoðað verði hvort fyrirtækið gæti fengið sundlaugina á Steinsstöðum keypta ásamt búningsklefum eða leigða til langs tíma.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að skoða málið nánar og afla frekari upplýsinga.
Bjarni Jónsson óskar bókað: "Undirrituðum hugnast ekki að sundlaugin á Steinsstöðum verði seld og telur hagfelldara að sinni að laugin sé í útleigu eins og verið hefur".
Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 227. fundur - 29.04.2008
Afgreiðsla 430. fundar byggðarráðs staðfest á 227. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.