Fara í efni

Framtíðarskipan SSNV

Málsnúmer 0801098

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 419. fundur - 30.01.2008

Á fundinn kom starfshópur SSNV um framtíðarskipan samstarfs sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og kynnti samantekt um skilaboð samráðsfundar 28. nóvember 2007 og hugleiðingar um næstu skref. Málin rædd vítt og breytt m.a. um áherslur Skagfirðinga og framtíðarsýn um starfsemi SSNV.

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 423. fundur - 21.02.2008

Endurskoðun og tillögur nefndar á vegum SSNV um framtíðarskipan samstarfs sveitarfélaga á Norðurlandi vestra lagðar fram. Byggðarráð samþykkir að halda kynningarfund fyrir sveitarstjórnarfulltrúa fimmtudaginn 28. febrúar nk.

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 222. fundur - 26.02.2008

Afgreiðsla 423. fundar byggðarráðs staðfest á 222. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.