Fara í efni

Varðandi leyfi fyrir Íslandsmeistaramót í MX og Enduro 2008

Málsnúmer 0802051

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 423. fundur - 21.02.2008

Erindi frá Vélhjólaklúbbi Skagafjarðar varðandi leyfi fyrir Íslandsmeistaramót í MX og Enduro 2008 í samræmi við 3.mgr. 3.gr. reglugerðar nr. 507/2007 um akstursíþróttir og aksturskeppni utan vega. Byggðarráð gerir ekki athugasemdir við að keppnirnar verði haldnar en áréttar að gengið verði eins vel um landið og unnt er og mótshaldarar lagi öll umhverfisspjöll sem kunna að verða af keppninni.

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 222. fundur - 26.02.2008

Afgreiðsla 423. fundar byggðarráðs staðfest á 222. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.