Fara í efni

Fjallskilamál

Málsnúmer 0804098

Vakta málsnúmer

Landbúnaðarnefnd Svf. Skagafjarðar - 132. fundur - 15.04.2008

Ingibjörg Hafstað boðaði forföll. Til fundarins voru boðaðir: Björn Friðriksson fjallskilastjóri framhl. Seyluhrepps, Björn Ófeigsson og Smári Borgarsson fjallskilastjóri Lýtingsstaðahrepps. (Smári varamaður). EFTIRFARANDI GERÐIST: Einar setti fund og bauð fundarfólk velkomið. Einar skýrði frá tilefni fundarins, sem var að ræða um fjallskilamál, hann rifjaði upp umræður er fóru fram fyrir um einu ári, um að sameina fjallskiladeildir framhl. Seyluhrepps og fjallskiladeild Lýtingsstaðahrepps, sett voru þá fram drög að tilhögun, þær tillögur voru nú til umræðu á þessum fundi. Miklar umræður fóru fram og málin rædd frá ýmsum hliðum um tilhögun. Vilji virtist vera til að sameina deildirnar. Þá var allnokkur umræða um rekstur skálanna. Samþykkt var að halda fund um þær hugmyndir, sem ræddar voru, í næstu viku. Þá þarf að funda með Bólhlíðingum.

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 227. fundur - 29.04.2008

Afgreiðsla 132. fundar landbúnaðarnefndar staðfest á 227. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.

Landbúnaðarnefnd Svf. Skagafjarðar - 141. fundur - 02.03.2009

Þá fór fram umræða um rekstur skálanna á Eyvindarstaðaheiði svo og kostnað við endurbætur og viðbyggingar við Galtarárskála. Samþ. var að koma á fót samráðsnefnd um rekstur skálanna svo og um málefni Eyvindarstaðaheiðar.
Samráðsnefnd samanstandi af eftirtöldum: Sveitarfél. Skagafj. 2 fulltr.; Húnavatnshreppur 2 fulltr.; Upprekstrarfélag Eyvindarstaðaheiðar 2 fulltr.; Eyvindarstaðaheiði ehf 2 fulltr. og frá Heiðafélagi Blöndu og Svartár 1 fulltr. ? samt. 9 fulltrúar. Skagfirðingar boði starfshópinn til fyrsta fundar.

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 249. fundur - 30.06.2009

Afgreiðsla 141. fundar landbúnaðarnefndar staðfest á 249. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.