Stuðningur við starfsfólk í leikskóla sem stunda nám í kennarafræðum
Málsnúmer 0905069
Vakta málsnúmerFræðslunefnd Svf. Skagafjarðar - 48. fundur - 28.05.2009
Fjárhagslegur stuðningur við starfsfólk í leikskólum verði afnuminn skólaárið 2009-2010. Þeim starfsmönnum sem þegar hafa hafið nám í þessum fræðum verði þó gert kleift að ljúka því með stuðningi sveitarfélagsins, þó að hámarki með einum námsdegi í viku hverri, sem bundinn er við skólasókn hjá leikskólakennaranemum. Starfsmönnum þessum verði gert að undirrita samkomulag um að þeir skuldbindi sig til þess að starfa hjá sveitarfélaginu í a.m.k. 2 ár að námi loknu.
Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 248. fundur - 09.06.2009
Afgreiðsla 48. fundar fræðslunefndar lögð fram á 248. fundi sveitarstjórnar.