Fara í efni

Aðalgata 23, Villa Nova - umsókn um styrk til greiðslu fasteignagjalda

Málsnúmer 1003117

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 510. fundur - 18.03.2010

Lagt fram erindi frá Villa Nova ehf. þar sem sótt er um styrk til að mæta álagningu fasteignagjalda 2010 á fasteignina Aðalgötu 23, Villa Nova, skv. 2. málsgr. 5. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga.

Byggðarráð samþykkir að veita styrk sem nemur 70% af fasteignaskatti ársins 2010 skv. 5. gr. reglna sveitarfélagins um styrki til greiðslu fasteignaskatts.

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 261. fundur - 30.03.2010

Afgreiðsla 510. fundar byggðaráðs staðfest á 261. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.