"Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar samþykkir að hefja framkvæmdir við viðbyggingu Árskóla samkvæmt framkomnum tillögum þar um. Verkinu skal áfangaskipt í þrjá til fjóra áfanga og skal fyrsti áfangi vera fokheld viðbygging. Ætla má að kostnaður við 1. áfanga nemi um 250 mkr. Skal byggingarnefnd Árskóla koma fram með frekari tillögur að áfangaskiptingu verksins, klára hönnun með tilliti til áfangaskiptingar og gera tillögur um nauðsynlegar breytingar á núverandi húsnæði. Telji sveitarstjórn ástæðu til, getur hún frestað seinni áföngum framkvæmdarinnar, t.d. ef fjárhagsstaða sveitarfélagsins gefur tilefni til slíks að mati sveitarstjórnar. Í samræmi við ákvörðun sveitarstjórnar frá 6. október 2009 er sveitarstjóra falið að klára viðræður við Kaupfélag Skagfirðinga um verk- og fjármögnunarsamninga en þó með fyrirvörum um áfangaskiptingu verksins og mögulegrar seinkunar þess samkvæmt ofanrituðu."
Fulltrúar Framsóknarflokks í sveitarstjórn.
GREINARGERÐ:
Ekki þarf að eyða mörgum orðum í að reifa mikilvægi þess að byggja við Árskóla og koma starfsemi skólans og tónlistarskóla undir eitt þak. Helstu ástæður þess eru þær að hagræði af því að vera með starfsemina undir einu þaki er metin á um 50 milljónir króna á ári og er þá ekki metið til fjár hagræði nemenda og foreldra vegna þess. Þá er húsnæðið eins og það er í dag hvorki bjóðandi nemendum né starfsfólki og fer engan veginn saman við þann metnað sem er í skólastarfi í Skagafirði. Einnig er ljóst að fyrirliggjandi er verulegur kostnaður vegna viðhalds á núverandi húsnæði við Freyjugötu og slíkum fjármunum betur varið í fjárfestingu í framtíðahúsnæði fyrir Árskóla. Boð Kaupfélags Skagfirðinga (KS) um fjármögnun er rausnarlegt og mun liðka fyrir framkvæmdinni og annarri fjármögnun. Jafnframt endurspeglar það þann mikla metnað sem er í atvinnulífinu fyrir hönd héraðsins og er mikilvægt fyrir sveitarstjórn að finna þá trú sem er á frekari framþróun atvinnu- og mannlífs í héraðinu þegar teknar eru stórar fjárhagslegar ákvarðanir sem varða áframhaldandi uppbyggingu samfélagsins. Mikilvægt er að sýnt hefur verið fram á með skýrum hætti hvernig ætlunin er að ná fram hagræðingu í skólastarfi á Sauðárkróki við þessa miklu breytingu. Þar verður horft til þeirra atriða sem skólastjóri Árskóla og fræðslustjóri hafa lagt fram og hljóta mun staðfestingu sveitarstjórnar. Ljóst er að framkvæmdin er kostnaðarsöm en um leið afar mikilvæg fyrir framtíð skólastarfs á Sauðárkróki. Því er lagt til að hafist verði hana við framkvæmdina en um leið horft til þess að unnt verði að taka tillit til fjárhagsstöðu sveitarfélagsins verði þess þörf. Skv. skýrslum KPMG og R3 ráðgjafar ásamt áliti hagdeildar Sambands íslenskra sveitarfélaga er ljóst að Sveitarsjóður ræður við slíka framkvæmd. Skv. áætlunum sveitarfélagins er gert ráð fyrir að um 170 milljónir króna verði á ári til annarra framkvæmda og viðhalds þrátt fyrir framkvæmdir við Árskóla. Svigrúmið er augljóslega minna en undanfarin ár en þetta kjörtímabil hefur þurft að vera kjörtímabil stórra fjárfestinga. Framkvæmdir við Árskóla munu vitanlega takmarka möguleika til annarra stórframkvæmda en spyrja má hvort einhver stórframkvæmd sé mikilvægari. Lagt er til að sveitarstjórn samþykki að hefjast handa við verkefnið og að bygginganefnd og sveitarstjóra verði falið að vinna að því að koma verkefninu af stað.
Gísli Árnason tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:
Á þessum fundi erum við að samþykkja fjárhagsáætlun fyrir sveitarfélagið til næstu þriggja ára. Það er fulltrúum Framsóknarflokksins fullkunnugt um, enda bera þeir fulla ábyrgð á henni, sem meirihlutaaðilar í Sveitarstjórn Skagafjarðar. Fjárhagsáætlanir eiga lögum samkvæmt að birta stefnu sveitarstjórnar til þeirra ára er þær taka til. Þar er hins vegar ekki minnst einu orði á þann ætlaða vilja framsóknarmanna að skuldsetja sveitarfélagið um eitt þúsund og fjögur hundruð milljónir, eins og óbirt kostnaðaráætlun hljóðar.
Ef raunverulegur vilji væri á bak við þetta upphlaup framsóknarmanna, raunverulegur vilji til úrbóta í aðstöðu til skólahalds á Sauðárkróki, hefði verið eðlilegt að allir flokkar kæmu að þessu máli. Öllum er ljós sá ávinningur, sem felst í því að sameina Árskóla og tónlistarskóla í sama húsnæði. Með aðkomu allra flokka er standa að sveitarstjórn og sameiginlegu átaki í rekstri sveitarsjóðs næstu misserin eru líkur á að það geti orðið að veruleika. Tillaga framsóknarmanna rýfur þá samstöðu, sem þarf að vera um framkvæmdir af þessari stærðargráðu. Hún er öðru fremur sett fram til þess að slá pólitískar keilur í aðdraganda kosninga til sveitarstjórnar. Þetta er í besta falli afleit stjórnsýsla og ekki málinu til framdráttar.
Ég greiði því atkvæði gegn tillögunni eins og hún er sett fram.
Gísli Árnason
Páll Dagbjartsson tók til máls og lagði fram eftirfarnandi bókun:
"Sveitarstjórnarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins telja viðbyggingu Árskóla eitt af brýnum verkefnum sem framundan eru hjá sveitarfélaginu, en vegna stærðar verkefnisins hefur það sérstöðu umfram aðrar framkvæmdir. Verkið mun kosta a.m.k. 1,5 milljarða og verður að taka allt það fé að láni. Öll lán þarf að endurgreiða og því verður að skapa efnahagslegt svigrúmhjá sveitarfélaginu til lengri tíma litið til að geta staðið undir vöxtum og afborgunum.Það svigrúm þarf að nema, vegna þessarar framkvæmdar, minnst 150 milljónum á ári.Til þarf að koma veruleg hagræðing í rekstri og/eða auknar tekjur. Núverandi skuldastaða sveitarfélagsins er þegar orðin há miðað við tekjur, og hefur hækkað verulega á þessu kjörtímabili.
Við teljum óábyrgt af sveitarstjórnarfulltrúum, hvar í flokki sem þeir standa, sem eru að láta af störfum eftir tvo mánuði að skuldbinda sveitarsjóð með svo afgerandi hætti rétt fyrir kosningar og þar með binda hendur þeirrar sveitarstjórnar sem við tekur.
Við fulltrúar Sjálfstæðisflokksins greiðum atkvæði gegn tillögu Framsóknarmanna eins og hún liggur fyrir.Við teljum rétt að viðbygging Árskóla fái málefnalega umfjöllun í aðdraganda kosninganna sem framundan eruog ný sveitarstjórn taki síðan ákvörðun um hvenær ráðist verður í framkvæmdir, hvernig framkvæmdin verður fjármögnuð og hvernig áföngum verður hagað.Ekki er spurning um hvort ráðist verður í framkvæmdina heldur hvenær.Það er ekkert sem kallar á það núna, rétt fyrir kosningar, að taka ákvörðun í þessu stóra máli.Tveir til þrír mánuðir í því efni breyta engu.Vanda þarf betur undirbúninginn."
Gréta Sjöfn Guðmundsdótti tók til máls með leyfi 2. varaforseta og lagði fram eftirfarandi breytingartillögu við framkomna tillögu Framsóknarflokks.
"Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar samþykkir að eins fljótt og auðið er verði hafist handa við byggingu nýrrar viðbyggingar við Árskólasamkvæmt framkomnum tillögum þar um.
Sveitarstjóra er falið að vinna, ásamt byggðaráði og tæknideild sveitarfélagsins, að áframhaldandi undirbúningi verksins.Sveitarstjóra er falið að leggja fram tillögur fyrir byggðaráð að fyrirkomulagi vinnu við að ná fram nauðsynlegum sparnaði í rekstri sveitarfélagsins.Byggðaráði ásamt sveitarstjóra er falið að klára viðræður við Kaupfélag Skagfirðinga um verk- og fjármögnunarsamninga ásamt framlagningu tillagna um heildarfjármögnun.Sveitarstjórn telur rétt að endanlega ákvörðun um málið verði tekin að afloknum sveitarstjórnarkosningum."
Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir, Samfylkingunni.
Þá tóku til máls Þórdís Friðbjörnsdóttir og Einar E. Einarson.
Gunnar Bragi Sveinsson tók til máls og lagði fram breytingartillögu að lokatexta við aðaltillögu framsóknarmanna, svohjóðandi:
...takist að klár samninga fyrir kosningar þá skulu þeir samt sem áður hljóta umfjöllun og staðfestingu nýrrar sveitarstjórnar.
Þá tóku til máls, Íris Baldvinsdóttir og Gísli Árnason
Breytingartillaga fulltrúa Samfylkingar borin undir atkvæði. Tillagan var felld með fjórum atkvæðum gegn einu ogframsóknarmenn sitja hjá og óska bókað:
"Allir sem fylgst hafa með framgangi þessa máls þekkja stefnu Framsóknarflokksins. Því miður hefur ekki náðst samstaða með samstarfsflokknum um framgang verksins. Við teljum ekki ástæðu til að bíða lengur með ákvörðunartöku í málinu því samfélagið allt þarf á framkvæmdinni að halda og sýnt hefur verið fram á getu sveitarfélagsins til að fara í verkefnið. Þá teljum við ekki rétt að enn og aftur verði ákvörðun velt inn í kosningabaráttu og verði þar að bitbeini flokkanna. Við sitjum því hjá við framkomna tillögu Samfylkingarinnar".
Tillaga fulltrúa Framsóknarflokks með breytingartillögu borin undir atkvæði. Tillagan var felld með fjórum atkvæðum gegn fjórum og Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir óskar bókað að hún sitji hjá og leggur fram eftirfarandi bókun.
Undirrituð undirstrikar það að meirihluti Framsóknarflokks og Samfylkingar hefurþað á stefnuskrá sinni að vinna að því að koma Árskóla undir eitt þak og að því hefur verið unnið að heilindum, markmiðið hefur verið skýrt en ljóst er að leiðirnar að markmiðinu þ.e. aðferðafræðin er ólík hjá flokkunum. Það er ekki vandamál í sjálfu sér heldur verkefni til að leysa.
Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir, Samfylkingunni.
Fulltrúar Framsóknarflokks óska bókað.
Fyrir síðustu kosningar töldu flest framboð að ein mikilvægasta framkvæmd kjörtímabilsins væri að ljúka við Árskóla. Í samstarfsyfirlýsingu núverandi meirihluta kemur fram að ljúka eigi við framkvæmina á kjörtímabilinu. Vegna mikils skorts á leiksskólarýmum var ákveðið að fara í byggingu nýs leikskóla á undan en áfram unnið að undirbúningi að Árskóla. Eftir efnahagshrunið var ljóst að aðgangur að fjármagni var takmarkaðri en áður og bauð þá Kaupfélag Skagfirðinga sveitarfélaginu hagstætt lán til framkvæmdarinnar. Þann 6. október 2009 samþykkti sveitarstjórn að ganga til viðræðna við Kaupfélag Skagfirðinga á grundvelli tilboðs þeirra. Sveitarstjórn taldi rétt að meta sérstaklega getu sveitarfélagsins til að ráðast í jafn stóra framkvæmd og viðbygging Árskóla er og var endurskoðunarfyrirtækið KPMG fengið til verksins. Starfsmenn sveitarfélagsins reiknuðu út mögulega hagræðingu af því að sameina starfsemi skólans undir eitt þak og nemur sú hagræðing 50 ? 65 milljónum króna á ári. Síðar var einnig samið við ráðgjafafyrirtækið R3 til að fara yfir málið og jafnframt leitað álits hagdeildar Sambands íslenskra sveitarfélaga. Íumsögnum allra þessara aðila kemur fram að sveitarfélagið ræður við slíka framkvæmd en öllum verði að vera ljóst að svigrúm til sambærilegra stórframkvæmda verður lítið næstu árin. Þrátt fyrir svo stóra framkvæmd þá sýna áætlanir að gera megi ráð fyrir 170 milljónum króna í aðrar framkvæmdir og viðhald.
Rétt er að undirstrika að ná þarf fram verulegri hagræðingu í rekstri sveitarfélagsins. Þeirri hagræðingu þarf að ná hvort sem farið verður í byggingu Árskóla eða ekki, það sýnir fjárhagsáætlun ársins 2010.
Undirrituð harma afstöðu Samfylkingarinnarí ljósi yfirlýsingar flokkanna um samstarf. Neikvæð afstaða Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna kemur ekki á óvart þar sem þeir hafa unnið leynt og ljóst gegn framkvæmdinni. Sýnt hefur verið framá að sveitarfélagið ræður við framkvæmdina og hversu mikilvæg hún er nemendum, foreldrum, starfsfólki skólans og íbúum öllum. Þar að auki er afar mikilvægt að sveitarfélagið leggi sig fram við að halda stöðugu atvinnustigi eins og það framast getur.
Gísli Árnason tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun: "Vegna bókunar fulltrúa Framsóknarflokks vil ég að fram komi mótmæli við þeirri fullyrðingu að fulltrúar VG hafi unnið gegn þessari framkvæmd."
Forseti kynnti tillögu fulltrúa Framsóknarflokks.
"Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar samþykkir að hefja framkvæmdir við viðbyggingu Árskóla samkvæmt framkomnum tillögum þar um. Verkinu skal áfangaskipt í þrjá til fjóra áfanga og skal fyrsti áfangi vera fokheld viðbygging. Ætla má að kostnaður við 1. áfanga nemi um 250 mkr. Skal byggingarnefnd Árskóla koma fram með frekari tillögur að áfangaskiptingu verksins, klára hönnun með tilliti til áfangaskiptingar og gera tillögur um nauðsynlegar breytingar á núverandi húsnæði. Telji sveitarstjórn ástæðu til, getur hún frestað seinni áföngum framkvæmdarinnar, t.d. ef fjárhagsstaða sveitarfélagsins gefur tilefni til slíks að mati sveitarstjórnar. Í samræmi við ákvörðun sveitarstjórnar frá 6. október 2009 er sveitarstjóra falið að klára viðræður við Kaupfélag Skagfirðinga um verk- og fjármögnunarsamninga en þó með fyrirvörum um áfangaskiptingu verksins og mögulegrar seinkunar þess samkvæmt ofanrituðu."
Fulltrúar Framsóknarflokks í sveitarstjórn.
GREINARGERÐ:
Ekki þarf að eyða mörgum orðum í að reifa mikilvægi þess að byggja við Árskóla og koma starfsemi skólans og tónlistarskóla undir eitt þak. Helstu ástæður þess eru þær að hagræði af því að vera með starfsemina undir einu þaki er metin á um 50 milljónir króna á ári og er þá ekki metið til fjár hagræði nemenda og foreldra vegna þess. Þá er húsnæðið eins og það er í dag hvorki bjóðandi nemendum né starfsfólki og fer engan veginn saman við þann metnað sem er í skólastarfi í Skagafirði. Einnig er ljóst að fyrirliggjandi er verulegur kostnaður vegna viðhalds á núverandi húsnæði við Freyjugötu og slíkum fjármunum betur varið í fjárfestingu í framtíðahúsnæði fyrir Árskóla. Boð Kaupfélags Skagfirðinga (KS) um fjármögnun er rausnarlegt og mun liðka fyrir framkvæmdinni og annarri fjármögnun. Jafnframt endurspeglar það þann mikla metnað sem er í atvinnulífinu fyrir hönd héraðsins og er mikilvægt fyrir sveitarstjórn að finna þá trú sem er á frekari framþróun atvinnu- og mannlífs í héraðinu þegar teknar eru stórar fjárhagslegar ákvarðanir sem varða áframhaldandi uppbyggingu samfélagsins. Mikilvægt er að sýnt hefur verið fram á með skýrum hætti hvernig ætlunin er að ná fram hagræðingu í skólastarfi á Sauðárkróki við þessa miklu breytingu. Þar verður horft til þeirra atriða sem skólastjóri Árskóla og fræðslustjóri hafa lagt fram og hljóta mun staðfestingu sveitarstjórnar. Ljóst er að framkvæmdin er kostnaðarsöm en um leið afar mikilvæg fyrir framtíð skólastarfs á Sauðárkróki. Því er lagt til að hafist verði hana við framkvæmdina en um leið horft til þess að unnt verði að taka tillit til fjárhagsstöðu sveitarfélagsins verði þess þörf. Skv. skýrslum KPMG og R3 ráðgjafar ásamt áliti hagdeildar Sambands íslenskra sveitarfélaga er ljóst að Sveitarsjóður ræður við slíka framkvæmd. Skv. áætlunum sveitarfélagins er gert ráð fyrir að um 170 milljónir króna verði á ári til annarra framkvæmda og viðhalds þrátt fyrir framkvæmdir við Árskóla. Svigrúmið er augljóslega minna en undanfarin ár en þetta kjörtímabil hefur þurft að vera kjörtímabil stórra fjárfestinga. Framkvæmdir við Árskóla munu vitanlega takmarka möguleika til annarra stórframkvæmda en spyrja má hvort einhver stórframkvæmd sé mikilvægari. Lagt er til að sveitarstjórn samþykki að hefjast handa við verkefnið og að bygginganefnd og sveitarstjóra verði falið að vinna að því að koma verkefninu af stað.
Gísli Árnason tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:
Á þessum fundi erum við að samþykkja fjárhagsáætlun fyrir sveitarfélagið til næstu þriggja ára. Það er fulltrúum Framsóknarflokksins fullkunnugt um, enda bera þeir fulla ábyrgð á henni, sem meirihlutaaðilar í Sveitarstjórn Skagafjarðar. Fjárhagsáætlanir eiga lögum samkvæmt að birta stefnu sveitarstjórnar til þeirra ára er þær taka til. Þar er hins vegar ekki minnst einu orði á þann ætlaða vilja framsóknarmanna að skuldsetja sveitarfélagið um eitt þúsund og fjögur hundruð milljónir, eins og óbirt kostnaðaráætlun hljóðar.
Ef raunverulegur vilji væri á bak við þetta upphlaup framsóknarmanna, raunverulegur vilji til úrbóta í aðstöðu til skólahalds á Sauðárkróki, hefði verið eðlilegt að allir flokkar kæmu að þessu máli. Öllum er ljós sá ávinningur, sem felst í því að sameina Árskóla og tónlistarskóla í sama húsnæði. Með aðkomu allra flokka er standa að sveitarstjórn og sameiginlegu átaki í rekstri sveitarsjóðs næstu misserin eru líkur á að það geti orðið að veruleika. Tillaga framsóknarmanna rýfur þá samstöðu, sem þarf að vera um framkvæmdir af þessari stærðargráðu. Hún er öðru fremur sett fram til þess að slá pólitískar keilur í aðdraganda kosninga til sveitarstjórnar. Þetta er í besta falli afleit stjórnsýsla og ekki málinu til framdráttar.
Ég greiði því atkvæði gegn tillögunni eins og hún er sett fram.
Gísli Árnason
Páll Dagbjartsson tók til máls og lagði fram eftirfarnandi bókun:
"Sveitarstjórnarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins telja viðbyggingu Árskóla eitt af brýnum verkefnum sem framundan eru hjá sveitarfélaginu, en vegna stærðar verkefnisins hefur það sérstöðu umfram aðrar framkvæmdir. Verkið mun kosta a.m.k. 1,5 milljarða og verður að taka allt það fé að láni. Öll lán þarf að endurgreiða og því verður að skapa efnahagslegt svigrúm hjá sveitarfélaginu til lengri tíma litið til að geta staðið undir vöxtum og afborgunum. Það svigrúm þarf að nema, vegna þessarar framkvæmdar, minnst 150 milljónum á ári. Til þarf að koma veruleg hagræðing í rekstri og/eða auknar tekjur. Núverandi skuldastaða sveitarfélagsins er þegar orðin há miðað við tekjur, og hefur hækkað verulega á þessu kjörtímabili.
Við teljum óábyrgt af sveitarstjórnarfulltrúum, hvar í flokki sem þeir standa, sem eru að láta af störfum eftir tvo mánuði að skuldbinda sveitarsjóð með svo afgerandi hætti rétt fyrir kosningar og þar með binda hendur þeirrar sveitarstjórnar sem við tekur.
Við fulltrúar Sjálfstæðisflokksins greiðum atkvæði gegn tillögu Framsóknarmanna eins og hún liggur fyrir. Við teljum rétt að viðbygging Árskóla fái málefnalega umfjöllun í aðdraganda kosninganna sem framundan eru og ný sveitarstjórn taki síðan ákvörðun um hvenær ráðist verður í framkvæmdir, hvernig framkvæmdin verður fjármögnuð og hvernig áföngum verður hagað. Ekki er spurning um hvort ráðist verður í framkvæmdina heldur hvenær. Það er ekkert sem kallar á það núna, rétt fyrir kosningar, að taka ákvörðun í þessu stóra máli. Tveir til þrír mánuðir í því efni breyta engu. Vanda þarf betur undirbúninginn."
Gréta Sjöfn Guðmundsdótti tók til máls með leyfi 2. varaforseta og lagði fram eftirfarandi breytingartillögu við framkomna tillögu Framsóknarflokks.
"Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar samþykkir að eins fljótt og auðið er verði hafist handa við byggingu nýrrar viðbyggingar við Árskóla samkvæmt framkomnum tillögum þar um.
Sveitarstjóra er falið að vinna, ásamt byggðaráði og tæknideild sveitarfélagsins, að áframhaldandi undirbúningi verksins. Sveitarstjóra er falið að leggja fram tillögur fyrir byggðaráð að fyrirkomulagi vinnu við að ná fram nauðsynlegum sparnaði í rekstri sveitarfélagsins. Byggðaráði ásamt sveitarstjóra er falið að klára viðræður við Kaupfélag Skagfirðinga um verk- og fjármögnunarsamninga ásamt framlagningu tillagna um heildarfjármögnun. Sveitarstjórn telur rétt að endanlega ákvörðun um málið verði tekin að afloknum sveitarstjórnarkosningum."
Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir, Samfylkingunni.
Þá tóku til máls Þórdís Friðbjörnsdóttir og Einar E. Einarson.
Gunnar Bragi Sveinsson tók til máls og lagði fram breytingartillögu að lokatexta við aðaltillögu framsóknarmanna, svohjóðandi:
...takist að klár samninga fyrir kosningar þá skulu þeir samt sem áður hljóta umfjöllun og staðfestingu nýrrar sveitarstjórnar.
Þá tóku til máls, Íris Baldvinsdóttir og Gísli Árnason
Breytingartillaga fulltrúa Samfylkingar borin undir atkvæði. Tillagan var felld með fjórum atkvæðum gegn einu og framsóknarmenn sitja hjá og óska bókað:
"Allir sem fylgst hafa með framgangi þessa máls þekkja stefnu Framsóknarflokksins. Því miður hefur ekki náðst samstaða með samstarfsflokknum um framgang verksins. Við teljum ekki ástæðu til að bíða lengur með ákvörðunartöku í málinu því samfélagið allt þarf á framkvæmdinni að halda og sýnt hefur verið fram á getu sveitarfélagsins til að fara í verkefnið. Þá teljum við ekki rétt að enn og aftur verði ákvörðun velt inn í kosningabaráttu og verði þar að bitbeini flokkanna. Við sitjum því hjá við framkomna tillögu Samfylkingarinnar".
Tillaga fulltrúa Framsóknarflokks með breytingartillögu borin undir atkvæði. Tillagan var felld með fjórum atkvæðum gegn fjórum og Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir óskar bókað að hún sitji hjá og leggur fram eftirfarandi bókun.
Undirrituð undirstrikar það að meirihluti Framsóknarflokks og Samfylkingar hefur það á stefnuskrá sinni að vinna að því að koma Árskóla undir eitt þak og að því hefur verið unnið að heilindum, markmiðið hefur verið skýrt en ljóst er að leiðirnar að markmiðinu þ.e. aðferðafræðin er ólík hjá flokkunum. Það er ekki vandamál í sjálfu sér heldur verkefni til að leysa.
Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir, Samfylkingunni.
Fulltrúar Framsóknarflokks óska bókað.
Fyrir síðustu kosningar töldu flest framboð að ein mikilvægasta framkvæmd kjörtímabilsins væri að ljúka við Árskóla. Í samstarfsyfirlýsingu núverandi meirihluta kemur fram að ljúka eigi við framkvæmina á kjörtímabilinu. Vegna mikils skorts á leiksskólarýmum var ákveðið að fara í byggingu nýs leikskóla á undan en áfram unnið að undirbúningi að Árskóla. Eftir efnahagshrunið var ljóst að aðgangur að fjármagni var takmarkaðri en áður og bauð þá Kaupfélag Skagfirðinga sveitarfélaginu hagstætt lán til framkvæmdarinnar. Þann 6. október 2009 samþykkti sveitarstjórn að ganga til viðræðna við Kaupfélag Skagfirðinga á grundvelli tilboðs þeirra. Sveitarstjórn taldi rétt að meta sérstaklega getu sveitarfélagsins til að ráðast í jafn stóra framkvæmd og viðbygging Árskóla er og var endurskoðunarfyrirtækið KPMG fengið til verksins. Starfsmenn sveitarfélagsins reiknuðu út mögulega hagræðingu af því að sameina starfsemi skólans undir eitt þak og nemur sú hagræðing 50 ? 65 milljónum króna á ári. Síðar var einnig samið við ráðgjafafyrirtækið R3 til að fara yfir málið og jafnframt leitað álits hagdeildar Sambands íslenskra sveitarfélaga. Í umsögnum allra þessara aðila kemur fram að sveitarfélagið ræður við slíka framkvæmd en öllum verði að vera ljóst að svigrúm til sambærilegra stórframkvæmda verður lítið næstu árin. Þrátt fyrir svo stóra framkvæmd þá sýna áætlanir að gera megi ráð fyrir 170 milljónum króna í aðrar framkvæmdir og viðhald.
Rétt er að undirstrika að ná þarf fram verulegri hagræðingu í rekstri sveitarfélagsins. Þeirri hagræðingu þarf að ná hvort sem farið verður í byggingu Árskóla eða ekki, það sýnir fjárhagsáætlun ársins 2010.
Undirrituð harma afstöðu Samfylkingarinnar í ljósi yfirlýsingar flokkanna um samstarf. Neikvæð afstaða Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna kemur ekki á óvart þar sem þeir hafa unnið leynt og ljóst gegn framkvæmdinni. Sýnt hefur verið framá að sveitarfélagið ræður við framkvæmdina og hversu mikilvæg hún er nemendum, foreldrum, starfsfólki skólans og íbúum öllum. Þar að auki er afar mikilvægt að sveitarfélagið leggi sig fram við að halda stöðugu atvinnustigi eins og það framast getur.