Styrkur til UMF Tindastóls vegna snyrtinga og tjaldstæða á Landsbankamóti og Króksmóti 2011
Málsnúmer 1106017
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 280. fundur - 21.06.2011
Afgreiðsla 556. fundar byggðaráðs staðfest á 280. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.
Lagt fram erindi frá Knattspyrnudeild Tindastóls þar sem óskað er eftir því að sveitarfélagið leggi til WC gáma og tjaldstæði á knattspyrnumótum félagsins í sumar til að mæta þeim mikla fjölda ferðamanna sem sækja Skagafjörð heim vegna mótanna.
Áætlaður kostnaður vegna þessa er kr. 983.000. Byggðarráð samþykkir fjárveitinguna og ákveður að vísa málinu til endurskoðunar fjárhagsáætlunar.