Framlög úr Jöfnunarsjóði til eflingar tónlistarnáms
Málsnúmer 1108016
Vakta málsnúmerFræðslunefnd Svf. Skagafjarðar - 70. fundur - 24.08.2011
Reglur um framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til eflingar tónlistarnáms og jöfnunar á aðstöðumun nemenda lagðar fram til kynningar. Fræðslunefnd felur fræðslustjóra í samstarfi við skólastjóra tónlistarskóla og sveitarstjóra að aðlaga reglur þessar að starfsemi Tónlistarskóla Skagafjarðar.
Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 282. fundur - 20.09.2011
Afgreiðsla 70. fundar fræðslunefndar staðfest á 282. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.
Lögð fram til kynningar drög að reglum um framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til eflingar tónlistarnáms og jöfnunar á aðstöðumun nemenda.