Fara í efni

Umsókn um búfjárleyfi og fleira

Málsnúmer 1603102

Vakta málsnúmer

Landbúnaðarnefnd Svf. Skagafjarðar - 183. fundur - 29.03.2016

Lögð fram umsókn um leyfi til búfjárhalds frá Guðmundi Óla Pálssyni, kt. 140544-4859 og Eggert Ólasyni, kt. 260670-3529, dagsett 13. mars 2016. Sótt er um leyfi fyrir allt að 30 kindum, 3 hrossum, 18 hænum og einum hana. Einnig er að finna í umsókninni athugasemdir um umgengni.
Landbúnaðarnefnd samþykkir leyfi fyrir framangreindum fjölda búfjár. Landbúnaðarnefnd óskar eftir því við umsækjendur að umgengni verði bætt verulega með tilvísun í 6. grein Samþykkta um búfjárhald í þéttbýli í Sveitarfélaginu Skagafirði.

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 339. fundur - 13.04.2016

Afgreiðsla 183. fundar landbúnaðarnefndar staðfest á 339. fundi sveitarstjórnar 13. apríl 2016 með níu atkvæðum.