Fræðslunefnd - 116
Málsnúmer 1610020F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 348. fundur - 23.11.2016
Fundargerð 116. fundar fræðslunefndar lögð fram til afgreiðslu á 348. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Hrund Pétursdóttir kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Fræðslunefnd - 116 Drög að fjárhagsáætlun fyrir árið 2017 lögð fram og rædd. Nefndin felur starfsmönnum að vinna áfram að gerð áætlunarinnar fyrir málaflokkinn til seinni umræðu. Ýmsar forsendur eru enn óljósar, svo sem gjaldskrárhækkanir, kjarasamningar o.fl. Bókun fundar Afgreiðsla 116. fundar fræðslunefndar staðfest á 348. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2016 með níu atkvæðum.
-
Fræðslunefnd - 116 Formaður fór yfir það skipulag sem viðhaft hefur verið vegna sumarleyfa og lokunar leikskóla í Skagafirði, en tvö síðastliðin sumur hafa leikskólarnir Birkilundur og Tröllaborg verið lokaðir í fjórar til fimm vikur en í Ársölum hefur verið lokað í tvær vikur. Endurmeta þarf þessa lokun í Ársölum fyrir næsta ár. Málið verður tekið upp aftur á næsta fundi nefndarinnar. Bókun fundar Afgreiðsla 116. fundar fræðslunefndar staðfest á 348. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2016 með níu atkvæðum.
-
Fræðslunefnd - 116 Tekið fyrir erindi frá Mennta- og menningarmálaráðuneytinu þar sem hvatt er til þess að framvegis verði 20. nóvember helgaður mannréttindum barna, en árið 2013 var Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna lögfestur á Íslandi. Í ár ber 20. nóvember upp á helgidag og því var ákveðið að halda upp á þennan dag þann 18. nóvember n.k. Fræðslunefnd hvetur skóla Skagafjarðar til að helga þennan dag mannréttindum barna og mikilvægi þess að börn og fullorðnir þekki sáttmálann. Bókun fundar Afgreiðsla 116. fundar fræðslunefndar staðfest á 348. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2016 með níu atkvæðum.
-
Fræðslunefnd - 116 Lagt fram erindi frá Menntamálastofnun þar sem boðið er upp á að sækja um að láta fram fara ytra mat á leikskólum Skagafjarðar. Ytra mat hefur nýlega farið fram fyrir Ársali en ákveðið að sækja um fyrir Tröllaborg og Birkilund. Bókun fundar Afgreiðsla 116. fundar fræðslunefndar staðfest á 348. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2016 með níu atkvæðum.
-
Fræðslunefnd - 116 Lögð fram tilkynning frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu um breytingar á grunnskólalögum, þar sem m.a. er gerð sú breyting að í stað hugtaksins ,,sérfræðiþjónusta" í lögum verður hugtakið ,,skólaþjónusta" notað. Bókun fundar Afgreiðsla 116. fundar fræðslunefndar staðfest á 348. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2016 með níu atkvæðum.
- .6 1610056 Kóðinn 1.0 og smátölvan Microbit - samstarfsverkefni um eflingu forritunarkunnáttu grunnskólabarnaFræðslunefnd - 116 Kynnt erindi frá Mennta- og menningarmálaráðuneytinu þar sem skólum er boðið að sækja um að fá afhent sér að kostnaðarlausu forritunartæki fyrir alla nemendur 6. og 7. bekkjar, svo kallaða Micro:bit smátölvu. Markmiðið er að efla forritunarkunnáttu íslenskra barna og auka vitund þeirra um mikilvægi forritunar í daglegum störfum, eins að efla rökhugsun og stuðla að auknum áhuga á tækni- og iðngreinum. Grunnskólar Skagafjarðar hafa þegar sótt um að fá tækið afhent fyrir sína nemendur. Bókun fundar Afgreiðsla 116. fundar fræðslunefndar staðfest á 348. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2016 með níu atkvæðum.