Veitunefnd - 30
Málsnúmer 1611009F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 348. fundur - 23.11.2016
Fundargerð 30. fundar veitunefndar lögð fram til afgreiðslu á 348. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Gunnsteinn Björnsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Veitunefnd - 30 Fjárhagsáætlun fyrir Skagafjarðarveitur fyrir árið 2017 lögð fram.
Nefndin samþykkir áætlunina og vísar til Byggðarráðs.
Bókun fundar Afgreiðsla 30. fundar veitunefndar staðfest á 348. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2016 með níu atkvæðum -
Veitunefnd - 30 Lögð voru fyrir fundinn drög að nýframkvæmdaáætlun Skagafjarðarveitna fyrir árið 2017.
Nefndin samþykkir áætlunina og vísar til Byggðarráðs. Bókun fundar Afgreiðsla 30. fundar veitunefndar staðfest á 348. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2016 með níu atkvæðum -
Veitunefnd - 30 Ræddar voru gjaldskrárbreytingar hitaveitu og vatnsveitu.
Nefndin leggur til að lágmarks vatnsgjald vatnsveitu verði hækkað úr 40kr/m3 í 41,2kr/m3 og hámarks vatnsgjald úr 47,75kr/m3 í 49,20kr/m3. Einnig er lagt til að notkunargjald, mælaleiga og heimæðargjöld vatnsveitu hækki um 5%.
Nefndin leggur til að gjaldskrá hitaveitu verði ekki hækkuð.
Vísað til Byggðarráðs.
Bókun fundar Afgreiðsla 30. fundar veitunefndar staðfest á 348. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2016 með níu atkvæðum -
Veitunefnd - 30 Framkvæmdir við lagningu ljósleiðara á Langholtinu eru hafnar og verið er að vinna í heildaráætlun á ljósleiðaravæðingu dreifbýlis í Skagafirði í samvinnu við Mílu ehf. Bókun fundar Afgreiðsla 30. fundar veitunefndar staðfest á 348. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2016 með níu atkvæðum
-
Veitunefnd - 30 Farið var yfir stöðu mælavæðingar þéttbýlis og niðurstöður álestra af nýjum mælum. Bókun fundar Afgreiðsla 30. fundar veitunefndar staðfest á 348. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2016 með níu atkvæðum
-
Veitunefnd - 30 Lögð voru fyrir fundinn drög að samningi við Verið - Hólaskóla vegna sjóveitu.
Nefndin samþykkir framlögð drög og felur sviðstjóra að ganga frá samningi sem mun gilda frá og með 1. janúar 2017. Bókun fundar Afgreiðsla 30. fundar veitunefndar staðfest á 348. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2016 með níu atkvæðum -
Veitunefnd - 30 Lögð voru fyrir fundinn drög að samningi vegna nýtingar á hitaveituholu við Hverhóla í Lýtingsstaðahreppi.
Nefndin samþykkir drögin og felur sviðstjóra að ganga frá samningi við landeiganda. Bókun fundar Afgreiðsla 30. fundar veitunefndar staðfest á 348. fundi sveitarstjórnar 23. nóvember 2016 með níu atkvæðum