Fara í efni

Drög að leiðbeinandi reglum um sérstakan húsnæðisstuðning send til umsagnar

Málsnúmer 1611302

Vakta málsnúmer

Félags- og tómstundanefnd Svf. Skagafjarðar - 239. fundur - 24.01.2017

Lögð fram drög að reglum sveitarfélagsins um sérstakan hússnæðisstuðning, sbr. reglur velferðarráðuneytisins sem einnig voru lagðar fram.

Félags- og tómstundanefnd samþykkir reglurnar með áorðnum breytingum og vísar þeim til byggðarráðs.

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 772. fundur - 26.01.2017

Félags- og tómstundanefnd vísaði til byggðarráðs frá 239. fundi sínum þann 24. janúar 2017, drögum að reglum sveitarfélagsins um sérstakan húsnæðisstuðning.

Byggðarráð samþykkir reglurnar með áorðnum breytingum.

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 351. fundur - 15.02.2017

Félags- og tómstundanefnd vísaði til byggðarráðs frá 239. fundi sínum þann 24. janúar 2017, drögum að reglum sveitarfélagsins um sérstakan húsnæðisstuðning. Reglurnar með áorðnum breytingum, voru samþykktar á fundi byggðarráðs þann 26. janúar 2017 og vísað til afgreiðslu sveitarstjórnar.



Fyrirliggjandi reglur bornar upp til afgreiðslu og samþykktar með átta atkvæðum.