Fara í efni

Fræðslunefnd - 120

Málsnúmer 1704002F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 353. fundur - 12.04.2017

Fundargerð 120. fundar byggðarráðs lögð fram til afgreiðslu á 353. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Bjarki Tryggvqason kynnti fundargerð, enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Fræðslunefnd - 120 Tillaga að breytingum á reglum um innritun og innheimtu í leikskólum Skagafjarðar lagðar fram. Nefndin samþykkir reglurnar með áorðnum breytingum. Bókun fundar Afgreiðsla 120. fundar fræðslunefndar staðfest á 353. fundi sveitarstjórnar 12. apríl 2017 með níu atkvæðum.
  • Fræðslunefnd - 120 Tekið fyrir erindi frá foreldrum barna í leikskólanum Barnaborg á Hofsósi, þar sem lýst er áhyggjum af stöðu leikskólamála þar. Með vísan í bókun byggðarráðs frá 30. mars s.l. telur nefndin að búið sé að finna viðeigandi lausn til bráðabirgða á leikskólamálum á Hofsósi. Bókun fundar Afgreiðsla 120. fundar fræðslunefndar staðfest á 353. fundi sveitarstjórnar 12. apríl 2017 með níu atkvæðum.
  • Fræðslunefnd - 120 Lagt fram erindi frá Menntamálastofnun um innleiðingu á nýjum námsmatskvarða við loka grunnskóla. Þar er áréttað að frá og með vori 2017 skulu allir grunnskólar með 10. bekk hafa lokið innleiðingu á nýjum námsmatskvarða A-D við lok 10. bekkjar grunnskóla. Ráðuneytið ítrekar jafnframt að skólar skulu ekki nota vörpun við einkunnagjöf, þ.e.umreikna einkunnir í tölum yfir í bókstafina A-D. Grunnskólar skulu í öllum tilvikum styðjast við
    hæfni- og matsviðmið aðalnámskrár grunnskóla frá 2011 og 2013 við einkunnagjöf nemenda í 10.
    bekk.
    Bókun fundar Afgreiðsla 120. fundar fræðslunefndar staðfest á 353. fundi sveitarstjórnar 12. apríl 2017 með níu atkvæðum.
  • Fræðslunefnd - 120 Lagt fram bréf frá Kaupfélagi Skagfirðinga, f.h. verkefnisstjórnar ,,Sáttmála til sóknar í skólamálum í Skagafirði" þar sem tilkynnt er um að fræðsluþjónustu Sveitarfélagsins Skagafjarðar sé veittur styrkur að upphæð 7 milljónir króna til kaupa á spjaldtölvum fyrir grunnskóla Skagafjarðar. Fræðslunefnd þakkar þann hlýhug sem atvinnulífið sýnir skólum Skagafjarðar með þessum myndarlega styrk. Bókun fundar Afgreiðsla 120. fundar fræðslunefndar staðfest á 353. fundi sveitarstjórnar 12. apríl 2017 með níu atkvæðum.
  • Fræðslunefnd - 120 Á fundi sínum þann 9. febrúar s.l. samþykkti nefndin, í samráði við formann félags- og tómstundanefndar, að auglýsa eftir aðilum til að leigja Sólgarðaskóla og annast umsjón með sundlauginni á Sólgörðum, en þá þegar höfðu tveir aðilar óskað eftir að taka Sólgarðaskóla á leigu til ferðaþjónustu sumarið 2017. Nefndin þakkar Erni fyrir umsóknina en hefur ákveðið að ganga til samninga við Kristínu Sigurrós Einarsdóttur og Alfreð Símonarson. Bókun fundar Afgreiðsla 120. fundar fræðslunefndar staðfest á 353. fundi sveitarstjórnar 12. apríl 2017 með níu atkvæðum.
  • Fræðslunefnd - 120 Á fundi sínum þann 9. febrúar s.l. samþykkti nefndin, í samráði við formann félags- og tómstundanefndar, að auglýsa eftir aðilum til að leigja Sólgarðaskóla og annast umsjón með sundlauginni á Sólgörðum, en þá þegar höfðu tveir aðilar óskað eftir að taka Sólgarðaskóla á leigu til ferðaþjónustu sumarið 2017. Nefndin samþykkir að ganga til samninga við Kristínu Sigurrós Einarsdóttur og Alfreð Símonarson. Bókun fundar Afgreiðsla 120. fundar fræðslunefndar staðfest á 353. fundi sveitarstjórnar 12. apríl 2017 með níu atkvæðum.