Fara í efni

Veitunefnd - 39

Málsnúmer 1706011F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 357. fundur - 28.06.2017

Fundargerð 39. fundar veitunefndar lögð fram til afgreiðslu á 357. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Gísli Sigurðsson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Veitunefnd - 39 Farið var yfir stöðu hitaveituframkvæmda í Lýtingsstaðahreppi.
    Framkvæmdir hófust 22. maí sl. og er búið að leggju um 5,5km af stállögnum.
    Verktaki við verkið er Vinnuvélar Símonar ehf.
    Bókun fundar Afgreiðsla 39. fundar veitunefndar staðfest á 357. fundi sveitarstjórnar 28. júní 2017 með níu atkvæðum.
  • Veitunefnd - 39 Þann 15. maí sl. voru opnuð tilboð í verkið "Lagning ljósleiðara, Marbæli - Sauðárkrókur"
    Eftirfarandi tilboð bárust í verkið;
    Vinnuvélar Símonar ehf. 29.525.040.-
    Vélaþjónustan Messuholti ehf. 85.666.990.-

    Kostnaðaráætlun verksins var 35.600.300.-

    Veitunefnd samþykkir að ganga til samninga við lægstbjóðanda, Vinnuvélar Símona ehf. og felur sviðstjóra að ganga frá samningi vegna verksins.
    Bókun fundar Afgreiðsla 39. fundar veitunefndar staðfest á 357. fundi sveitarstjórnar 28. júní 2017 með níu atkvæðum.
  • Veitunefnd - 39 Sviðsstjóra hafa borist nokkrar fyrirspurnir varðandi möguleika á því að tengja íbúðar- og sumarhús ofan Steinsstaðahverfis við vatnsveitu Skagafjarðarveitna.
    Veitunefnd tekur jákvætt í erindið og felur sviðsstjóra að vinna áfram að málinu.
    Bókun fundar Afgreiðsla 39. fundar veitunefndar staðfest á 357. fundi sveitarstjórnar 28. júní 2017 með níu atkvæðum.
  • Veitunefnd - 39 Lagðar voru fram til kynningar tillögur frá Varmahlíðarstjórn að útsýnisskiltum á Reykjarhól við Varmahlíð. Um er að ræða tvö "panorama" skilti með ljósmynd þar sem fjöll og helstu örnefni koma fram.
    Gert er ráð fyrir að skiltin séu staðsett ofan á heitavatnstanki Skagafjarðarveitna.
    Veitunefnd samþykkir uppsetningu umræddra skilta í samráði við Skagafjarðarveitur.
    Bókun fundar Afgreiðsla 39. fundar veitunefndar staðfest á 357. fundi sveitarstjórnar 28. júní 2017 með átta atkvæðum. Þórdís Friðbjörnsdóttir óskar bókað að hún taki ekki þátt í atkvæðagreiðslu.
  • Veitunefnd - 39 Í kjölfar kynningarfundar með íbúum og landeigendum á norðanverðu Hegranesi, Reykjaströnd ásamt Skarði og Veðramóti og Efribyggð voru send út bréf til þess að kanna áhuga á viðkomandi svæðum á mögulegri lagningu hitaveitu um svæðin. Alls voru send út um 38 bréf og hefur til þessa 21 bréfi verið svarað og eru öll svörin jákvæð að einu undanskildu. Bókun fundar Afgreiðsla 39. fundar veitunefndar staðfest á 357. fundi sveitarstjórnar 28. júní 2017 með níu atkvæðum.
  • Veitunefnd - 39 Skagafjarðarveitur fengu Íslenskar Orkurannskóknir til að taka sýni úr hitaveituvatni úr Borgarmýrum við Sauðárkrók og gera á því greiningu eins og um kalt neysluvatn væri að ræða. Niðurstöður greiningar eru í stuttu máli þær að efnainnihald heita vatnsins er í velflestum tilfellum vel innan þeirra marka sem neysluvatnsreglugerðin setur. Frá þessu eru þó þrjár undantekningar; sýrustig, lykt (af brennisteinsvetni) og flúoríð sem öll eru örlítið yfir mörkum fyrir neysluvatn.
    Í niðurlagi skýrslunnar segir að ekki sé hægt að mæla með hitaveituvatni til drykkjar eða almennrar neyslu. Hins vegar getur heilbrigðisnefnd gefið leyfi til takmarkaðrar notkunar, til dæmis til matvælaframleiðslu.
    Bókun fundar Afgreiðsla 39. fundar veitunefndar staðfest á 357. fundi sveitarstjórnar 28. júní 2017 með níu atkvæðum.
  • Veitunefnd - 39 Rætt um áframhaldandi uppbyggingu ljósleiðara í dreifbýli.
    Sviðsstjóra falið að ræða við Mílu.
    Samþykkt að bjóða út síðustu áfanga Ísland ljóstengt 2017 í Skagafirði.
    Bókun fundar Afgreiðsla 39. fundar veitunefndar staðfest á 357. fundi sveitarstjórnar 28. júní 2017 með níu atkvæðum.