Fara í efni

Samstarfsnefnd með Akrahreppi - 34

Málsnúmer 1706012F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 357. fundur - 28.06.2017

Fundargerð 34. fundar Samstarfsnefndar með Akrahreppi lögð fram til afgreiðslu á 357. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Gunnsteinn Björnsson kynnti fundargerð. Einar E Einarsson, Gunnsteinn Björnsson, Stefán Vagn Stefánsson kvöddu sér hljóðs.
  • Samstarfsnefnd með Akrahreppi - 34 Málið áður á dagskrá Byggðarráðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar þann 2.febrúar s.l. þar sem Byggðarráð samþykkti að skoðað yrði hvort hægt væri að koma upp rennibraut við sundlaugina í Varmahlíð og fól sveitarstjóra að vinna kostnaðarmat. Fyrir fundinum liggja drög að teikningum og kostnaðarmati.
    Samstarfsnefnd samþykkir að fara í þá framkvæmd að setja upp rennibraut við sundlaugina í Varmahlíð og vísar til byggðarráðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar til lokaafgreiðslu. Hjá Akrahreppi liggur fyrir samþykki um framkvæmdina.
    Bókun fundar Afgreiðsla 34. fundar Samstarfsnefndar með Akrahreppi staðfest á 357. fundi sveitarstjórnar 58. júní 2017 með níu atkvæðum.
  • Samstarfsnefnd með Akrahreppi - 34 Rætt um eignir sem eru í sameiginlegri eigu sveitarfélaganna. Bókun fundar Afgreiðsla 34. fundar Samstarfsnefndar með Akrahreppi staðfest á 357. fundi sveitarstjórnar 58. júní 2017 með níu atkvæðum.
  • Samstarfsnefnd með Akrahreppi - 34 Farið yfir rekstrartölur ársins, framkvæmdir og viðhald. Bókun fundar Afgreiðsla 34. fundar Samstarfsnefndar með Akrahreppi staðfest á 357. fundi sveitarstjórnar 58. júní 2017 með níu atkvæðum.
  • Samstarfsnefnd með Akrahreppi - 34 Lagt fram bréf frá skólastjóra Varmahlíðarskóla þar sem óskað er eftir að skoðað verði með hvaða hætti varðveislu þeirra gripa sem eru í eigu Náttúrugripasafns Varmahlíðarskóla og varðveittir eru í skólanum, er best fyrir komið. Nefndin samþykkir að óska eftir því við forstöðumann Náttúrustofu Norðurlands vestra að meta munina og koma með tillögu um framtíðarvarðveislu. Bókun fundar Afgreiðsla 34. fundar Samstarfsnefndar með Akrahreppi staðfest á 357. fundi sveitarstjórnar 58. júní 2017 með níu atkvæðum.
  • Samstarfsnefnd með Akrahreppi - 34 Lagt fram bréf frá skólastjóra Varmahlíðaskóla með beiðni um aukafjárveitingu til tækjakaupa í íþróttamiðstöðina í Varmahlíð. Nefndin samþykkir að vísa beiðninni til fjárhagsáætlunargerðar ársins 2018, jafnframt verði farið yfir með hvaða hætti rekstri þreksalarins er best fyrir komið t.d. með tilliti til öryggismála. Bókun fundar Afgreiðsla 34. fundar Samstarfsnefndar með Akrahreppi staðfest á 357. fundi sveitarstjórnar 58. júní 2017 með níu atkvæðum.
  • Samstarfsnefnd með Akrahreppi - 34 Samstarfssamningur Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Akrahrepps er frá árinu 1999 og því 18 ár frá því hann var gerður. Þróunin í samstarfi sveitarfélaganna hefur síðan þá verið í þá átt að þjónusta gagnvart íbúunum og fyrirsvar hvað rekstur varðar hefur í sífellt meiri mæli verið veitt af hálfu Sveitarfélagsins Skagafjarðar en Akrahreppur greitt sinn hluta í sameiginlegum rekstri og stofnkostnaði.

    Við stjórnsýsluskoðun hjá Sveitarfélaginu Skagafirði fyrir árið 2015 komst KPMG ehf. að þeirri niðurstöðu að samstarfssamningur Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Akrahrepps uppfyllti ekki sveitarstjórnarlög nr. 138/2011. Á fundi samstarfsnefndar Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Akrahrepps 5. desember 2016 var því samþykkt að ráðast í endurskoðun á samningum á milli sveitarfélaganna tveggja.

    Sveitarfélagið Skagafjörður hefur ákveðið að fá liðsinni KPMG ehf. við að undirbúa gerð nýs þjónustusamnings Akrahrepps við Sveitarfélagið Skagafjörð sem uppfyllir sveitarstjórnarlög og önnur lög, reglur og samþykktir sem lúta að stjórnsýslu sveitarfélaga og tekjustofna þeirra. Skal samningurinn ná til allra sameiginlegra mála sveitarfélaganna tveggja. Skulu drög að slíkum samningi verða tilbúin fyrir gerð fjárhagsáætlunar sveitarfélaganna fyrir árið 2018.
    Bókun fundar Afgreiðsla 34. fundar Samstarfsnefndar með Akrahreppi staðfest á 357. fundi sveitarstjórnar 58. júní 2017 með níu atkvæðum.
  • Samstarfsnefnd með Akrahreppi - 34 Samstarfsnefnd sveitarfélaganna fagnar því að samkomulag um Náttúrustofu Norðurlands vestra sé orðið að veruleika. Sveitarfélögin sem standa að endurreisn Náttúrustofu eru Akrahreppur, Sveitarfélagið Skagafjörður, Sveitarfélagið Skagaströnd og Húnaþing vestra. Samstarfsnefnd beinir því til sveitarfélaganna að koma á fulltrúafundi hið fyrsta. Bókun fundar Afgreiðsla 34. fundar Samstarfsnefndar með Akrahreppi staðfest á 357. fundi sveitarstjórnar 58. júní 2017 með níu atkvæðum.