Veitunefnd - 48
Málsnúmer 1804002F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 366. fundur - 18.04.2018
Fundargerð 48. fundar veitunefndar lögð fram til afgreiðslu á 366. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Gunnsteinn Björnsson kynnti fundargerð. Bjarni Jónsson, Gunnsteinn Björnsson, Viggó Jónsson, Bjarni Jónsson og Viggó Jónsson kvöddu sér hljóðs.
-
Veitunefnd - 48 Lagt var fyrir erindi frá Maríu Eymundsdóttur og Pálma Jónssyni varðandi ljósleiðaravæðingu í dreifbýli í Sveitarfélaginu Skagafirði.
Sviðstjóra falið að svara erindinu. Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar veitunefndar staðfest á 366. fundi sveitarstjórnar 18. apríl 2018 með níu atkvæðum. -
Veitunefnd - 48 Lögð voru fyrir drög að útboðslýsingu og tilboðsskrá vegna lagningu ljósleiðara í Efri-Byggð og á Reykjaströnd.
Sviðstjóra falið að bjóða út verkið á grundvelli fyrirliggjandi útboðsgagna.
Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar veitunefndar staðfest á 366. fundi sveitarstjórnar 18. apríl 2018 með níu atkvæðum. -
Veitunefnd - 48 Farið var yfir stöðu hitaveituframkvæmda í Lýtingsstaðahreppi.
Lokið er við að leggja hitaveitulögn yfir Vestari Jökulsá á milli Goðdala og Bjarnastaðahlíðar og er þá lagningu allra hitaveitulagna lokið.
Unnið er að tengingu á dælum og stýringum í dælustöð og er gert ráð fyrir að byrjað verði að dæla inn á stofnlögn á næstu dögum. Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar veitunefndar staðfest á 366. fundi sveitarstjórnar 18. apríl 2018 með níu atkvæðum. -
Veitunefnd - 48 Lagðar voru fyrir frumniðurstöður efnagreiningar á vatnssýni úr borholu á Reykjarhól á Bökkum.
Efnagreiningin er unnin af ÍSOR.
Nánar verður gerð grein fyrir niðurstöðum efnagreininga þegar þeim er lokið. Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar veitunefndar staðfest á 366. fundi sveitarstjórnar 18. apríl 2018 með níu atkvæðum. -
Veitunefnd - 48 Lögð var fyrir áætlun um vinnslueftirlit fyrir Skagafjarðarveitur árið 2018 frá ÍSOR.
Veitunefnd samþykkir að framkvæma vinnslueftirlit samkvæmt áætluninni.
Bókun fundar Afgreiðsla 48. fundar veitunefndar staðfest á 366. fundi sveitarstjórnar 18. apríl 2018 með níu atkvæðum.