Fara í efni

Hólavegur 16 - Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 1805196

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa Svf Skagafjarðar - 70. fundur - 08.06.2018

Eyþór Fannar Sveinsson kt. 231087-2579 og Sveinn Árnason kt. 230359-7929, sækja fyrir hönd Stóreigna ehf. kt. 640118-0670, um byggingaleyfi vegna endurbóta og breytinga á fasteign félagsins að Hólaveg 16 Sauðárkróki. Breytingarnar felast í að tvær íbúðir verða gerðar á efri hæð hússins. Á neðri hæð er fyrirhugað að verði hársnyrti- og fótaaðgerðarstofa. Gluggasetningu hússins verður breytt og stigi gerður upp á aðra hæð. Meðfylgjandi aðaluppdráttur, er gerður hjá Stoð ehf. af Atla Gunnari Arnórssyni kt. 120379-4029. Uppdráttarblöðin eru númer A100 - A104
útgefin 25.04.2018. Byggingarfulltrúi samþykkir byggingaráformin.