Umhverfis- og samgöngunefnd - 141
Málsnúmer 1808010F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 372. fundur - 22.08.2018
Fundargerð 141. fundar umhverfis- og samgöngunefndar lögð fram til afgreiðslu á 372. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Ingibjörg Huld Þórðardóttir kynnti fundargerð. Bjarni Jónsson og Ingibjörg Huld Þórðardóttir kvöddu sér hljóðs.
-
Umhverfis- og samgöngunefnd - 141 Farið var yfir skipulagsmál Sauðárkrókshafnar. M.a. var farið yfir drög að skipulagsuppdrætti frá 2010 ásamt tillögum Vegagerðarinnar um stækkun hafnarinnar.
Stefnt er að því að halda áfram vinnu við deiliskipulag hafnarsvæðisins.
Þessi liður fundarins var sameiginlegur með skipulags- og bygginganefnd. Bókun fundar Afgreiðsla 141. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 372. fundi sveitarstjórnar 22. ágúst 2018 með sjö atkvæðum.
Bjarni Jónsson og Álfhildur Leifsdóttur óska bókað að þau sitji hjá. -
Umhverfis- og samgöngunefnd - 141 Lagt var fyrir nefndina erindi frá FISK Seafood hf. um stækkun á húsnæði landvinnslu fyrirtækisins.
Nefndin óskar eftir kynningarfundi þar sem áformin verða kynnt nefndarmönnum. Bókun fundar Afgreiðsla 141. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 372. fundi sveitarstjórnar 22. ágúst 2018 með sjö atkvæðum.
Bjarni Jónsson og Álfhildur Leifsdóttur óska bókað að þau sitji hjá. -
Umhverfis- og samgöngunefnd - 141 Dýpkunarskipið Galilei er komið til Sauðárkrókshafnar og mun hefja dýpkun á næstu dögum. Alls verða dýpkaðir um 60.000m3 í innsiglingu og á snúningssvæði innan hafnar. Bókun fundar Afgreiðsla 141. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 372. fundi sveitarstjórnar 22. ágúst 2018 með sjö atkvæðum.
Bjarni Jónsson og Álfhildur Leifsdóttur óska bókað að þau sitji hjá. -
Umhverfis- og samgöngunefnd - 141 Lagt var fyrir fundinn erindi frá Vinnuvélum Símonar ehf. um framlengingu á samningi vegna snjómoksturs á Sauðárkóki.
Nefndin felur sviðstjóra að framlengja samning um snjómokstur á Sauðárkóki um 1 ár. Bókun fundar Afgreiðsla 141. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 372. fundi sveitarstjórnar 22. ágúst 2018 með sjö atkvæðum.
Bjarni Jónsson og Álfhildur Leifsdóttur óska bókað að þau sitji hjá. -
Umhverfis- og samgöngunefnd - 141 Lagt var fram til kynningar erindi frá Umhverfisstofnun varðandi auglýsingar meðfram vegum og annars staðar utan þéttbýlis. Í erindinu vekur Umhverfisstofnun athygli á gildandi lögum og reglugerðum sem þetta varðar og beinir því til sveitarfélaga að vera vakandi fyrir óheimilum auglýsingum. Bókun fundar Afgreiðsla 141. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 372. fundi sveitarstjórnar 22. ágúst 2018 með sjö atkvæðum.
Bjarni Jónsson og Álfhildur Leifsdóttur óska bókað að þau sitji hjá. -
Umhverfis- og samgöngunefnd - 141 Lagður var fyrir tölvupóstur frá umhverfis- og auðlindaráðuneyti vegna kynningarfunda umhverfis- og auðlindaráðherra um drög að frumvarpi um nýja stofnun fyrir verndarsvæði á Íslandi. Stofnuninni er ætlað að hafa með höndum umsýslu allra þjóðgarða á Íslandi og annarra friðlýstra svæða auk almennrar náttúverndar. Kynningarfundur verður haldinn á Akureyri 23. ágúst nk.
Bókun fundar Afgreiðsla 141. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 372. fundi sveitarstjórnar 22. ágúst 2018 með sjö atkvæðum.
Bjarni Jónsson og Álfhildur Leifsdóttur óska bókað að þau sitji hjá.. -
Umhverfis- og samgöngunefnd - 141 Lögð var fram til kynningar nýsamþykkt reglugerð um starfsemi slökkviliða. Bókun fundar Afgreiðsla 141. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 372. fundi sveitarstjórnar 22. ágúst 2018 með sjö atkvæðum.
Bjarni Jónsson og Álfhildur Leifsdóttur óska bókað að þau sitji hjá.