Fara í efni

Skipulags- og byggingarnefnd - 337

Málsnúmer 1901015F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 380. fundur - 06.02.2019

Fundargerð 337. fundar skipulags- og byggingarnefndar lögð fram til afgreiðslu á 380. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Regína Valdimarsdóttir, með leyfi varaforseta, kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 337 Sveitarstjórn samþykkir samhljóða á fundi 12. desember 2018 að hafin verði vinna við heildarendurskoðun á aðalskipulagi sveitarfélagsins til 12 ára.
    Við endurskoðun aðalskipulagsins gefast tækifæri til að virkja íbúa og atvinnulíf í sveitarfélaginu til að hafa áhrif á umhverfi sitt og þróun sveitarfélagsins. Slík samráðsvinna getur haft jákvæð áhrif á samfélagið og gert skipulagsvinnuna betri og nytsamlegri. Endurskoðun aðalskipulags verður stefnumarkandi heildarsýn varðandi þróun sveitarfélagsins a.m.k. til næstu 12 ára. Skipulaginu er ætlað að stuðla að hagkvæmri og skynsamlegri nýtingu lands, móta stefnu um þróun byggðar og landnotkunar, og leggja mat á helstu áhrif skipulags á umhverfið og samfélag.
    Á fundinum var farið yfir helstu viðfangsefni sem tengjast gerð nýs aðalskipulags og verklag við þá vinnu.
    Bókun fundar Afgreiðsla 337. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 380. fundi sveitarstjórnar 1. febrúar 2019 með níu atkvæðum.