Fara í efni

Skipulags- og byggingarnefnd - 340

Málsnúmer 1902009F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 381. fundur - 13.03.2019

Fundargerð 340. fundar skipulags- og byggingarnefndar lögð fram til afgreiðslu á 381. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Regína Valdimarsdóttir, með leyfi varaforseta, kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Skipulags- og byggingarnefnd - 340 Sameiginlegur fundur skipulags- og bygginganefndar og umhverfis- og samgöngunefndar.
    Undirbúningsvinna fyrir gerð endurskoðaðs deiliskipulags fyrir hafnarsvæðið á Sauðárkróki er hafin.
    Farið var yfir ýmis fyrirliggjandi gögn vegna skipulagsgerðarinnar, m.a. drög að verklýsingu, drög að skipulagslýsingu frá 2016 og frumhugmyndir siglingasviðs Vegagerðarinnar að stækkun Sauðárkrókshafnar frá árinu 2014.
    Í drögum að verklýsingu er stutt lýsing á viðfangsefnum endurskoðunar á skipulagi, nálgun skipulagsvinnunnar ásamt tímaáætlun.
    Verkfræðistofan Stoð ehf á Sauðárkróki verður ráðgjafi Sveitarfélagsins við gerð deiliskipulagsins og sátu fulltrúar Verkfræðistofunnar fundinn.
    Fyrirhugað er að halda fund með hagsmunaaðilum þar sem þeim verður gefinn kostur á að koma á framfæri sínum viðhorfum.
    Bókun fundar Afgreiðsla 340. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 380. fundi sveitarstjórnar 13. mars 2019 með níu atkvæðum.