Fara í efni

Umhverfis- og samgöngunefnd - 151

Málsnúmer 1902026F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 381. fundur - 13.03.2019

Fundargerð 151. fundar umhverfis- og samgöngunefndar lögð fram til afgreiðslu á 381. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Ingibjörg Huld Þórðardóttir kynnti fundargerð. Bjarni Jónsson kvaddi sér hljóðs.
  • Umhverfis- og samgöngunefnd - 151 Fulltrúar frá Kiwanisklúbbnum Freyju, Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir og Sigríður Káradóttir, mættu á fundinn til að fara yfir hugmyndir klúbbsins um samstarf við Sveitarfélagið um uppbyggingu fjölskyldugarðs á Sauðárkróki.
    Farið var yfir hugmyndir að staðsetningu fjölskyldugarðs og fyrirkomulag á samstarfi.
    Nefndin fagnar frumkvæði Freyjanna og hlakkar til samstarfsins.
    Bókun fundar Afgreiðsla 151. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 381. fundi sveitarstjórnar 13. mars 2019 með níu atkvæðum.
  • Umhverfis- og samgöngunefnd - 151 Fundargerðir Hafnasambands Íslands frá 18. janúar og 15. febrúar 2019 lagðar fram til kynningar. Bókun fundar Afgreiðsla 151. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 381. fundi sveitarstjórnar 13. mars 2019 með níu atkvæðum.
  • Umhverfis- og samgöngunefnd - 151 Lögð voru fram til kynningar frumdrög að áhættumati fyrir Skagafjarðarhafnir.
    Dagur Þór Baldvinsson, hafnarstjóri, fór yfir drögin.
    Unnið verður áfram að gerð áhættumats og endanleg útgáfa lögð fyrir nefndina að nýju.
    Bókun fundar Afgreiðsla 151. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 381. fundi sveitarstjórnar 13. mars 2019 með níu atkvæðum.
  • Umhverfis- og samgöngunefnd - 151 Haldin verður samráðsfundur með hagsmunaaðilum vegna nýs deiliskipulags Sauðárkrókshafnar fimmtudaginn 7. mars nk.
    Hagsmunaaðilar hafa verið boðaðir á fundinn ásamt ráðgjöfum og fulltrúum umhverfis- og samgöngunefndar og skipulags- og bygginganefndar.
    Drög að dagskrá fundarins voru lögð fyrir fundinn.
    Bókun fundar Afgreiðsla 151. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 381. fundi sveitarstjórnar 13. mars 2019 með níu atkvæðum.
  • Umhverfis- og samgöngunefnd - 151 Lagt var fram erindi frá Guðlaugi Skúlasyni, varaformanni umhverfis- og samgöngunefndar, varðandi markaðssetningu Skagafjarðarhafna.
    Í erindinu er lagt til að farið verði í sérstaka markaðssetningu á Skagafjarðarhöfnum með hafnarstjóra og þjónustuaðilum hafnarinnar í því skyni að nýta þá innviði sem fyrir eru sem best og festa Skagafjarðarhafnir í sessi sem fýsilegan kost til löndunar sjávarafla.
    Nefndin felur hafnarstjóra að ræða við þjónustuaðila um aðkomu að kynningu og markaðssetningu Skagafjarðarhafna.
    Bókun fundar Á dagskrá fundar umhverfis og samgöngunefndar var tillaga frá Guðlaugi Skúlasyni varaformanni nefndarinnar, varðandi markaðssetningu Skagafjarðarhafna.
    Að tillögu Bjarna Jónssonar er tillagan borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar, svohljóðandi:

    "Í erindinu er lagt til að farið verði í sérstaka markaðssetningu á Skagafjarðarhöfnum með hafnarstjóra og þjónustuaðilum hafnarinnar í því skyni að nýta þá innviði sem fyrir eru sem best og festa Skagafjarðarhafnir í sessi sem fýsilegan kost til löndunar sjávarafla. Nefndin felur hafnarstjóra að ræða við þjónustuaðila um aðkomu að kynningu og markaðssetningu Skagafjarðarhafna."

    Samþykkt með níu atkvæðum.

    Afgreiðsla 151. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 381. fundi sveitarstjórnar 13. mars 2019 með níu atkvæðum.
  • Umhverfis- og samgöngunefnd - 151 Farið var yfir samantekt á kostnaði vegna sorphirðu árið 2018. Bókun fundar Afgreiðsla 151. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 381. fundi sveitarstjórnar 13. mars 2019 með níu atkvæðum.