Fulltrúar Orkusölunnar komu á fund byggðarráðs til að kynna fyrirhuguð virkjunaráform í Tungudal í Fljótum. Byggðarráð þakkar fulltrúum Orkusölunnar fyrir kynningu á mögulegum virkjunarkostum í Tungudal í Fljótum. Málið hefur ekki áður komið inn á borð byggðarráðs enda málið á algeru frumstigi. Eftir fyrstu kynningu á málinu er ljóst að meta þarf áhrif slíkrar framkvæmdar fyrir Fljótin og Skagafjörð, en virkjunin myndi framleiða um 2 MW af rafmagni. Ljóst er afla þarf frekari gagna og fara í meiri rannsóknarvinnu á svæðinu ætli forsvarsmenn þessa verkefnis að halda með það áfram.
Byggðarráð þakkar fulltrúum Orkusölunnar fyrir kynningu á mögulegum virkjunarkostum í Tungudal í Fljótum. Málið hefur ekki áður komið inn á borð byggðarráðs enda málið á algeru frumstigi. Eftir fyrstu kynningu á málinu er ljóst að meta þarf áhrif slíkrar framkvæmdar fyrir Fljótin og Skagafjörð, en virkjunin myndi framleiða um 2 MW af rafmagni. Ljóst er afla þarf frekari gagna og fara í meiri rannsóknarvinnu á svæðinu ætli forsvarsmenn þessa verkefnis að halda með það áfram.